Formúla 1

Meistarinn með nýjan fé­laga eftir að Perez var sparkað

Sindri Sverrisson skrifar
Liam Lawson og Max Verstappen fara yfir málin í Abu Dhabi fyrr í þessum mánuði. Þeir keppa fyrir sama lið Red Bull á næsta keppnistímabili.
Liam Lawson og Max Verstappen fara yfir málin í Abu Dhabi fyrr í þessum mánuði. Þeir keppa fyrir sama lið Red Bull á næsta keppnistímabili. Getty/Mark Thompson

Nú er orðið ljóst hver mun aka fyrir Red Bull liðið ásamt heimsmeistaranum Max Verstappen, eftir að ákveðið var að reka Sergio Perez.

Nýi maðurinn er Nýsjálendingurinn Liam Lawson, sem er 22 ára gamall. Hann leysir af hólmi Perez sem Red Bull tilkynnti í gær að hefði verið látinn fara, vegna dapurs gengis á nýafstöðnu keppnistímabili.

Lawson færist upp í Red Bull liðið úr öðru liði orkudrykkjaframleiðandans, Racing Bulls, og fær þetta stóra skref þrátt fyrir að hafa aðeins tekið þátt í ellefu Formúlu 1 keppnum á tveimur keppnistímabilum.

Lawson hefur ekki þótt standa sig mikið betur en Yuki Tsunoda fyrir Racing Bulls, og safnað færri stigum, en hreppir þó stóra tækifærið fram yfir Japanann.

„Liam hefur sýnt með frammistöðum sínum á tveimur tímabilum með Racing Bulls að hann getur ekki bara náð sterkum úrslitum heldur er hann alvöru ökuþór, óhræddur við að berjast við þá bestu og hafa betur,“ sagði Christian Horner, liðsstjóri Red Bull.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×