Formúla 1

„Kominn tími á konu í For­múlu 1“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Danir gætu eignast fyrstu konuna í formúlu 1 en Alba Hurup Larsen hefur sett sér metnaðarfull markmið.
Danir gætu eignast fyrstu konuna í formúlu 1 en Alba Hurup Larsen hefur sett sér metnaðarfull markmið. @alba.racing

Hin danska Alba Hurup Larsen ætlar sér að skrifa nýjan kafla í sögu Formúlu 1 enda hefur hún sett sér risamarkmið.

Alba er enn bara sextán ára gömul en er að keyra fyrir Tommy Hilfiger í akademíu Formúlu 1.

Tískuvöruframleiðandinn Tommy Hilfiger styður hana á þessu merkilega ferðalagi þar sem takmarkið er að komast alla leið í Formúlu 1 í framtíðinni.

„Það hefur verið svolítið erfitt fyrir mig að finna ökumann sem ég tengi við af því að það eru ekki margar konur í minni íþrótt,“ segir Alba Hurup Larsen.

„Ég tók því þá ákvörðun að vera bara mín eigin fyrirmynd í staðinn. Ég held að það sé kominn tími á konu í Formúlu 1,“ segir Alba.

„Mér finnst Lewis Hamilton samt svalur,“ segir Alba í léttum tón.

„Ég tek þátt í akademíu Formúlu 1 sem er besta keppnin fyrir konur. Það verður mjög spennandi en um leið mikil áskorun fyrir mig. Ég vonast til að standa mig vel og komast áfram á næsta stig,“ segir Alba.

„Langtímamarkmið mitt er að komast alla leið og verða fyrsta konan til að vinna Formúlu 1,“ segir Alba

Það má finna stutt myndband með henni hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×