Viðskipti innlent

Þrír nýir for­stöðu­menn hjá OK

Atli Ísleifsson skrifar
Gísli Þorsteinsson, Ingveldur Gísladóttir og Björgvin Arnar Björgvinsson.
Gísli Þorsteinsson, Ingveldur Gísladóttir og Björgvin Arnar Björgvinsson. OK

Ingveldur Gísladóttir, Björgvin Arnar Björgvinsson og Gísli Þorsteinsson hafa tekið við starfi forstöðumanna hjá OK.

Í tilkynningu segir að Ingveldur sé forstöðumaður Búnaðarþjónustu, Björgvin Arnar forstöðumaður Innviðalausna og Gísli forstöðumaður Notendabúnaðar. 

„Um er að ræða ný svið hjá OK en markmiðið með þessum breytingum er að skerpa á skipulagi fyrirtækisins og stórefla þjónustu til viðskiptavina á fyrirtækjamarkaði.

Björgvin Arnar er með diplóma í kerfisfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Björgvin kemur aftur til OK eftir 10 ára fjarveru en hann starfaði hjá Opnum kerfum sem tæknimaður og ráðgjafi á árunum 1999-2013. Þá stofnaði hann eigið ráðgjafafyrirtæki og vann síðan sem kerfisstjóri hjá RARIK.

Ingveldur hefur mikla reynslu á sviði upplýsingatækni. Hún var þjónustustjóri hjá Hátækni frá 2001 til 2013. Hún hóf störf hjá OK árið 2014 og var áður forstöðumaður verkstæðis- og ábyrgðarþjónustu.

Gísli er með MBA frá Háskólanum í Reykjavík, BA í sagnfræði og próf í hagnýtri fjölmiðlun frá Háskóla Íslands. Hann starfaði lengi vel sem blaðamaður á Morgunblaðinu og var síðar upplýsingafulltrúi hjá Vodafone. Hann hefur einnig starfað sem markaðsstjóri hjá Matís og Origo,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×