Körfubolti

Haukar voru betri í dag

Pálmi Þórsson skrifar
Friðrik Ingi viðurkenndi að Haukar hefðu verið sterkara liðið í kvöld.
Friðrik Ingi viðurkenndi að Haukar hefðu verið sterkara liðið í kvöld. Vísir/Diego

Friðrik Ingi Rúnarsson var að vonum mjög ósáttur með sínar stelpur í Keflavík eftir ósigur gegn Haukum í Ólafssal þegar liðin mættust í Bónus-deild kvenna í körfubolta. Aðspurður um sín fyrstu viðbrögð var svarið mjög einfalt.

„Ég er hundfúll hvernig þetta þróaðist. Við sýndum ágætis kafla í fyrri hálfleik og kannski hefðum við getað gert örlítið betur og þá hefðum við haft yfirhöndina. En einhvern veginn byrjum við ekki vel í seinni hálfleik, missum þær svolítið frá okkur og erum þar af leiðandi að berjast við að koma til baka. Sem við eyðum mikilli orku í.“

„Haukar voru bara betri í dag. Ákvarðana tökur hjá þeim og einn á einn hæfileikar undir pressu að koma sér í þær stöður sem liðið vildi. Haukar voru bara betri í því í dag.“

Keflavíkur stelpum gekk illa að skapa sér góð færi þegar leið á leikinn og voru eitt af þeim orsökum að boltinn gekk einfaldlega ekki nægilega hratt milli manna og hafa lið sem Friðrik Ingi þjálfað oft á tíðum verið þannig lið að boltinn hreyfist hratt og mikið. Hann var auðvitað ósáttur með það í þessum leik.

„Það er auðvitað grundvallar atriði að hreyfa boltann hratt og vel. Mér fannst koma kaflar þar sem við vorum að stoppa boltann allt of mikið og ætla jafnvel að drippla alla leið til þess leikmanns sem átti að fá boltann. Þannig svæðin verða allt of þröng og einn varnarmaður getur jafnvel dekkað tvo sóknarmenn. Að sjálfsögðu verðum við að gera betur í því.“

„Kannski er það tenging við það sem ég var að segja áðan. Við hefðum þurft á því að halda að hreyfa boltann hraðar því í dag höfðum ekki þá eiginleika að skapa eitthvað upp úr engu.“

„Við vorum einfaldlega ekki nógu skarpar og ekki nógu hraðar. Þess vegna hefði boltinn mátt fljóta miklu hraðar og miklu meira til þess að skapa okkur betri skot og einhver svæði fyrir aftan til að fara bakdyra megin og svo framvegis. Alveg klárlega þurfum við að gera miklu betur í því,“ sagði Friðrik Ingi að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×