Skoðun

Frjálsar hand­færa­veiðar - Opið svar til Strand­veiðifélags Ís­lands

Álfheiður Eymarsdóttir skrifar

Kæra strandveiðifólk.

Nýverið spurði Kjartan Sveinsson, formaður Strandveiðifélags Íslands, alla stjórnmálaflokka um afstöðu þeirra til strandveiða.

Píratar vilja svo sannarlega styrkja strandveiðar og hafa verið með samþykkta stefnu um frjálsar handfæraveiðar allt frá árinu 2016. Þær eru umhverfisvænar og myndu styrkja byggð um land allt – og styðja við þær 700 fjölskyldur sem hafa beina afkomu af strandveiðum. Jafnframt myndu afleidd störf bætast við, þjónusta eflast og fiskmarkaðir lifna við.

Þar sem lausnir okkar Pírata felast í róttækum breytingum þá höfum við þrepaskipt leiðinni að frjálsum handfæraveiðum og styrkingu strandveiðikerfisins. Margt þarf að lagfæra hér á landi við fiskveiðistjórnun í heild sinni, á borð við kvótakerfið, strandveiðar og byggðakvóta. Sumt af því er mjög einfalt – annað flóknara.

12 dagar – ekkert stopp

Fyrst þarf að tryggja hverjum bát á strandveiðum 12 veiðidaga í þá mánuði sem vertíðin stendur yfir, án stöðvunarheimildar. Þetta tryggir jafnræði milli landsvæða og alls strandveiðifólks, ásamt því að auka fyrirsjáanleika og öryggi. Allir eru með 48 dagana trygga og freistast því ekki út á sjó í brælu til að ná sem mestu fyrir stopp. Stöðvunarheimildin er eitur og verður að fara strax. Við vöruðum við ójafnræði núverandi kerfis á milli svæða inni á þingi og í atvinnuveganefnd þingsins þegar því var komið á fót árið 2018.

Lengri vertíð

Síðan mætti lengja vertíðina í sex mánuði því fiskgengdin er þannig að þau fyrir vestan vilja jafnvel byrja fyrr en í maí, á meðan þau sem róa fyrir norðaustan og sunnan vildu gjarnan veiða lengur en út ágúst. Hálfs árs vertíð með 48 til 60 örugga veiðidaga væri kærkomin í stað núverandi kerfis.

Banndagana í burtu

Við teljum einnig að strandveiðifólk eigi að geta valið hvenær er róið. Í núverandi kerfi er bannað að róa á föstudögum, um helgar og á almennum frídögum. Margir ná aldrei 12 dögum í júní vegna þessara takmarkana. Stuttur mánuður, margir frídagar og oft bræla. Þá kemur aftur freistingin til að róa þegar vont er í sjóinn.

Stærri skip út fyrir 12 mílur

Ein forsendan fyrir því að hægt sé að gefa handfæraveiðar frjálsar er að banna stærri skipum og togurum að veiða innan 12 mílna. Leyfum minni bátunum að veiða nær landi. Það eyðileggur hafsbotninn að leyfa stærri skipum að toga svo nærri landi. Ofveiði frjálsra handfæraveiða er ómöguleg vegna þess að veiðigetan er lítil. Hræðslan við að öll þjóðin hendi sér á handfæraveiðar er óþörf. Þetta er erfiðisvinna og alls ekki fyrir alla. Þorskstofninn hrynur ekki við þessar breytingar.

Áfram umhverfisvænar strandveiðar

Við teljum þetta vel hægt en stórútgerðin vill engar breytingar og á meðan við kjósum sömu stjórnmálaflokkana sem hlusta og trúa einungis áróðri SFS, þá breytist ekkert. Sama óvissan. Sama kapphlaupið vegna stöðvunarheimildarinnar. Sama bixið. Allir vita að byggðakvótinn virkar ekki en enginn gerir neitt.

Gangi ykkur vel í ykkar hagsmunabaráttu innan Strandveiðifélags Íslands, við Píratar erum svo sannarlega með ykkur í liði!

Áfram strandveiðar!

Höfundur skipar 2. sæti hjá Pírötum í Suðurkjördæmi.




Skoðun

Sjá meira


×