Erlent

Ráku hátt­settan her­foringja sem sakaður var um lygar

Samúel Karl Ólason skrifar
Úkraínskur hermaður gengur hjá líki rússnesks hermanns í austurhluta Úkraínu. Herforingi sem rússneskir herbloggarar hafa sakað um að bera ábyrgð á miklu mannfalli hefur verið rekinn úr starfi.
Úkraínskur hermaður gengur hjá líki rússnesks hermanns í austurhluta Úkraínu. Herforingi sem rússneskir herbloggarar hafa sakað um að bera ábyrgð á miklu mannfalli hefur verið rekinn úr starfi. AP/Alex Babenko

Forsvarsmenn rússneska hersins eru sagðir hafa rekið Gennady Anashkin herforingja vegna rangra skýrslna sem hann mun hafa sent yfirmönnum sínum. Hann stýrði aðgerðum rússneska hersins í austurhluta Úkraínu.

Anashkin tók við stjórn svo kallaðs „suður hernaðarhéraðs Rússlands“ fyrr á þessu ári. Það er eitt fimm hernaðarhéraða Rússlands og spannar þrettán sambandsríki milli Svartahafs og Kaspíahafs.

Nánar tiltekið er Anashkin sagður hafa verið rekinn vegna slæms gengis rússneskra hermanna nærri bænum Siversk, þar sem Rússum hefur orðið lítið ágengt á undanförnum mánuðum. Í frétt Reuters er haft eftir rússneskum herbloggurum að þeir hafi lengi kvartað yfir því að hermenn hafi verið sendir gegn vörnum Úkraínumanna við Siversk án stuðnings og skipulagningar.

Rússar hafa sótt nokkuð fram í suðausturhluta Úkraínu á undanförnum mánuðum.

Rybar, ein vinsælasta herbloggarasíða Rússlands, kvartaði yfir því hve langan tíma hefði tekið að reka Anashkin. Ljóst hefði verið fyrir tveimur mánuðum að það væri nauðsynlegt.

Rússneski útlagamiðilinn Meduza hefur eftir bloggurum, sem hafa oft góða heimildarmenn í rússneska hernum, að Anashkin hafi verið sakaður um að lýsa því yfir að hann hefði hernumið bæi sem hann hefði ekki tekið í rauninni.

Þá hefði hann misst gífurlegan fjölda hermanna við að ná þeim bæjum sem hann hefði raunverulega náð.

Varnarmálaráðuneytið hefur ekki staðfest brottrekstur Anashkin en einn rússneskur miðill, sem þykir hliðhollur Kreml, hefur eftir heimildarmanni sínum í ráðuneytinu að lengi hafi staðið til að skipta um herforingja á svæðinu.


Tengdar fréttir

Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn

Rússar hafa sent loftvarnarkerfi og flugskeyti til Norður-Kóreu og er það í skiptum fyrir hermenn sem sendir hafa verið til Rússlands. Þá hafa Norðurkóreumenn einnig fengið tækni varðandi gervihnetti frá Rússum, samkvæmt þjóðaröryggisráðherra Suður-Kóreu.

Tóku tíu úkraínska fanga af lífi

Yfirvöld í Úkraínu segja Rússa hafa tekið að minnsta kosti tíu úkraínska stríðsfanga af lífi í Kúrsk-héraði á dögunum. Aftakan var fönguð á myndband með dróna en slíkum myndböndum af aftökum og myndböndum sem rússneskir hermenn hafa sjálfir tekið, hefur farið verulega fjölgandi á undanförnum vikum.

Úkraínuforseti hvetur Vesturlönd til einbeittari stuðnings

Forseti Úkraínu segir bandamenn ekki mega óttast að ganga lengra í stuðningi þeirra og varnir gegn innrás Rússa sem nú hefur staðið yfir í þúsund daga. Allar tilslakanir væru vatn á myllu Rússlandsforseta sem yrði ekki stoppaður öðruvísi en með valdi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×