Innlent

Þarf að greiða á sjöunda þúsund fyrir að kjósa

Árni Sæberg skrifar
Það komast ekki allir á kjörstað til þess að nýta kosningaréttinn. Það getur verið kostnaðarsamt.
Það komast ekki allir á kjörstað til þess að nýta kosningaréttinn. Það getur verið kostnaðarsamt. Vísir/Anton Brink

Íslenskur öryrki sem er búsettur í Brasilíu furðar sig á því að þurfa að greiða 6.500 krónur fyrir að kjósa utan kjörfundar í komandi alþingiskosningum.

Þórhallur Steingrímsson býr að jafnaði í nokkra mánuði á ári í Ríó í Brasilíu með konu sinni, Rósu. Hann Hafði samband við Vísi eftir að hafa greitt atkvæði hjá ræðismanni Íslands í Brasilíu. Ferlið hafi gengið smurt fyrir sig og hann hafi notið góðrar aðstoðar ræðismannsins.

Hann hafi aftur á móti þurft að greiða 6.500 krónur fyrir að senda atkvæði sitt til Íslands með ábyrgðarpósti. Hann furðar sig á þessu og spyr sig hvort jafnt eigi ekki yfir alla að ganga þegar kemur að því að nýta kosningaréttinn. 

Fjöldi fólks með kosningarétt erlendis

Samkvæmt kosningalögum heldur íslenskur ríkisborgari kosningarétti sínum í sextán ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu. Eftir það getur hann sótt um hjá Þjóðskrá að vera tekinn á kjörskrá. 

Alþingi samþykkti á dögunum breytingu á kosningalögum sem gerir Þjóðskrá kleift að taka umsækjendur á kjörskrá í tæka tíð fyrir kosningarnar nú. Áður sagði í lögunum að samþykktar umsóknir tækju gildi 1. desember eftir að sótt var um. Kosningar fara fram 30. nóvember og því ljóst að enginn hefði fengið kosningarétt ef ekki hefði komið til breytinganna.

Fleiri í sama báti og Þórhallur

Á vef landskjörstjórnar segir að kjósandi sem kýs utan kjörfundar beri ábyrgð á því að koma atkvæði sínu á réttan stað. Hægt sé að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila. Fram að kjördegi sé kjörstjóra skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í póst.

Vísir hefur rætt við kjósendur víðar. Einn þeirra greiddi fimm hundruð krónur fyrir að koma atkvæði frá Danmörku í pósti og annar 9.700 krónur fyrir að koma bréfi frá Kanada. Sá lenti í því að kanadíski pósturinn var í verkfalli og því þurfti hann að senda atkvæðið með flutningafyrirtæki, með tilheyrandi kostnaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×