Formúla 1

Tryggja fram­tíð for­múlu 1 í Móna­kó

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Heimamaðurinn Charles Leclerc, sem keyrir fyrir Ferrari, fagnaði sigri í Mónakókappakstrinum í ár.
Heimamaðurinn Charles Leclerc, sem keyrir fyrir Ferrari, fagnaði sigri í Mónakókappakstrinum í ár. Getty/Bryn Lennon

Formúla 1 er ekki á förum frá smáríkinu Mónakó. Nýr risasamningur er í höfn sem gleður margar formúluáhugamenn.

Samkomulagið er nú klárt á milli Bifreiðaklúbbs Mónakó og toppliðanna í formúlu 1. Samningurinn var kynntur í gær.

Mónakókappaksturinn hefur verið á dagskrá frá árinu 1950 og á hverju ári síðan 1955.

Keppnin er mjög sérstök því hún fer fram á þröngum götum Mónakó. Kappar eins og Ayrton Senna, Michael Schumacher og Niki Lauda hafa fagnað þar sigri. Sagan er mikil og það er mikil hátíð þegar keppnin fer þar fram.

Í ár var það heimamaðurinn Charles Leclerc, sem er fæddur í Mónakó, sem fagnaði tilfinningaríkum sigri.

„Ég er ánægður með að formúla 1 verði áfram í Mónakó til ársins 2031,“ sagði Stefano Domenicali, forseti formúlu 1.

Það voru einhverjar vangaveltur uppi um að Mónakó myndi detta alveg út af dagatalinu eða Mónakókappaksturinn myndi ekki fara fram á hverju ári. Af því verður ekki.

Það fylgir keppninni vissulega mikill glamúr en um leið er hún oft ekki mjög spennandi þar sem að það er nánast ómögulegt að taka fram úr á þröngri brautinni.

Mónakókappaksturinn á næsta ári mun fara fram 25. maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×