Fótbolti

Ný­stár­legur undir­búningur fyrir lands­leik

Valur Páll Eiríksson skrifar
Bosníumenn nutu sín vel í gær.
Bosníumenn nutu sín vel í gær. Mynd/Twitter

Bosníumenn hafa farið athyglisverða leið í undirbúningi sínum fyrir komandi leik við Þýskaland í Þjóðadeild karla í fótbolta.

Landsliðsþjálfari Bosníu, Sergej Barbarez, virðist hafa haldið að hans leikmenn þyrfti aðeins að lyfta sér upp fyrir komandi verkefni.

Til að hrista hópinn saman fór liðið í heljarinnar ferðalag í skemmtigarðinn Europa-Park í Þýskalandi, sem er í um 100 kílómetra fjarlægð frá æfingamiðstöð liðsins í Karlsruhe.

Þýskir fjölmiðlar deildu skemmtilegum myndum af bosníska liðinu sem virðist hafa notið sín vel, þar á meðal í rússíbanareið.

Er þetta besta liðsmynd fótboltaliðs í sögunni?Mynd/Twitter



Fleiri fréttir

Sjá meira


×