Íslenski boltinn

Lenti í stórum jarð­skjálfta launalaus í heimsfaraldri

Valur Páll Eiríksson skrifar
Theodór Elmar Bjarnason hefur lent í ýmsu á 20 ára ferli sínum sem telur sex lönd.
Theodór Elmar Bjarnason hefur lent í ýmsu á 20 ára ferli sínum sem telur sex lönd. Vísir/Vilhelm

Hótanir liðsfélaga, partýstand og mannskæður jarðskjálfti er á meðal þess sem er eftirminnilegt frá 20 ára fótboltaferli Theodórs Elmar Bjarnasonar sem taldi sex lönd.

Theodór Elmar á skrautlegan feril að baki og var víðförull. Atvinnumannaferillinn byrjaði þegar hann var aðeins 17 ára og hélt til Glasgow í Skotlandi til að spila með stórliði Celtic þar sem hann hitti miklar hetjur og litríka karaktera á við Roy Keane, Thomas Gravesen og Neil Lennon, sem varð síðar stjóri liðsins.

„Ég man eitt skiptið þá klobbaði ég Neil Lennon á æfingu og hann hvíslaði að mér: Ef þú gerir þetta aftur brýt ég á þér fæturna,“ segir Theodór Elmar.

Það voru engir smá karakterar sem Theodór Elmar æfði með hjá Celtic á sínum tíma. Roy Keane og Neil Lennon þar á meðal.Getty

Mikið partýstand fyrstu árin

Meiðsli settu strik í reikninginn í Skotlandi og þá gekk á ýmsu utan vallar. Sama var uppi á teningunum hjá Lyn í Osló.

„Það var mjög mikið partýstand á manni á þessum tíma þegar maður var ungur. Það var bara jafn gaman í Osló og Glasgow fyrir mér. Það er kannski hluti af því að maður meikaði það ekki hjá Celtic, að það var of mikið líf og fjör utan vallar,“ segir Elmar.

Það var mikið fjör á djamminu fyrstu árin, í Glasgow og Osló.Getty

Launalaus í heimsfaraldri

Hvað eftirminnilegast er þá strembinn tími í Tyrklandi. Theodór Elmar fékk þá ekki laun frá félagi sínu í miðjum heimsfaraldri þegar mannskæður jarðskjálfti skók borgina Izmir, hvar hann bjó með fjölskyldunni.

„Það var áskorun að vera bæði í Tyrklandi og Grikklandi þegar Covid kom. Sonur minn mátti ekki fara í einhverjar sex vikur og við föst inni hjá okkur. Svo var ég ekki að fá laun á sama tíma. Það var alveg áskorun,“

„En saman komumst við í gegnum þetta. Svo horfir maður til baka hvað þetta var súrrealískt og eiginlega bara fyndið að hafa upplifað þetta,“ segir Elmar.

Til að bæta gráu ofan á svart varð einn stærsti jarðskjálti síðari tíma í borginni Izmir þegar Elmar og fjölskylda bjó þar. Jarðskjálftinn varð fyrir sléttum fjórum árum, 30. október 2020, og dró 119 manns til bana.

„Við lentum á sama tíma í einhverjum stærsta jarðskjálfta í Izmir, upp á 7,1. Það dó fullt af fólki í kringum mann. Þá var maður bara þakklátur að hafa haft efni á byggingu sem stóð þetta af sér. Það var ekkert grín að vera uppi á 23. hæð dúandi um í þvílíkum jarðskjálfta. Maður man alveg eftir því. Annars, fyrir utan það, hefur þetta eiginlega verið eins og draumur, allur ferillinn,“ segir Elmar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×