Innlent

Dag­mar Ýr tekur við stöðu sveitar­stjóra af Birni

Atli Ísleifsson skrifar
Dagmar Ýr Stefánsdóttir.
Dagmar Ýr Stefánsdóttir. Aðsend

Dagmar Ýr Stefánsdóttir hefur verið ráðin til að gegna stöðu sveitarstjóra Múlaþings. Hún tekur við starfinu af Birni Ingimarssyni um næstu áramót, en hann hefur gegnt starfi sveitarstjóra frá því í júlí 2010.

Í tilkynningu segir að alls hafi borist níu umsóknir um stöðuna en fimm einstaklingar dregið umsókn sína til baka eftir að óskað var eftir nafnalista. 

Eftirfarandi sóttu um starf sveitarstjóra:

  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir - Framkvæmdastjóri
  • Gunnlaugur Aðalbjarnarson – Framkvæmdastjóri fjármála
  • Hilmar Kristinsson - Verkefnastjóri
  • Hlynur Jónsson - Lögmaður

„Dagmar er með B.A. gráðu í fjölmiðlafræði frá Háskólanum á Akureyri. Undanfarið rúmt ár hefur hún gegnt stöðu framkvæmdastjóra Austurbrúar, sem er verkefnastofa sem sinnir stoðþjónustu og vinnur að framgangi víðtækra og þverfaglegra verkefna í þágu Austurlands. Meðal málaflokka Austurbrúar eru byggðaþróun, atvinnumál, fræðslumál og rekstur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Áður starfaði Dagmar í tíu ár sem yfirmaður samskipta og samfélagsmála hjá Alcoa Fjarðaráli, sem forstöðumaður markaðs- og kynningarsviðs hjá Háskólanum á Akureyri í fimm ár og þar áður fréttamaður á N4 sjónvarpi Norðurlands í eitt ár. Dagmar hefur auk þess setið í ýmsum stjórnum, s.s. í heimastjórn Fljótsdalshéraðs, í fagráði Seyðisfjarðarkaupstaðar, í stjórn Stapa lífeyrissjóðs og í fagráði Uppbyggingarsjóðs Austurlands.

Dagmar er gift Guðmundi Hinriki Gústavssyni, leiðtoga hjá Alcoa Fjarðaráli og eiga þau tvo syni. Eru þau búsett á Egilsstöðum,“ segir í tilkynningunni sem fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar Múlaþings, þær Berglind Harpa Svavarsdóttir, D-lista, og Jónína Brynjólfsdóttir B-lista skrifa undir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×