Fótbolti

Cecilía hélt hreinu á móti toppliðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Landsliðskonan Cecilía Rán Rúnarsdóttir er að standa sig vel með Internazionale á Ítalíu.
Landsliðskonan Cecilía Rán Rúnarsdóttir er að standa sig vel með Internazionale á Ítalíu. Getty/Marco Tacca

Cecilía Rán Rúnarsdóttir og félagar hennar í Internazionale gerðu markalaust jafntefli við topplið Juventus í stórleiknum í itölsku deildinni í dag.

Juventus var á toppnum fyrir leikinn en þær náðu ekki að koma boltanum í markið framjá íslensku landsliðskonunni.

Cecilía Rán er á láni hjá Internazionale frá þýska liðinu Bayern München en hún er að koma sterk til baka eftir erfið meiðsli.

Cecilía hélt marki sínu hreinu í annað skiptið í fyrstu fimm leikjum sínum með Inter en hún átti einnig stórleik á móti gríðarlega sterku liði Roma í 1-1 jafntefli á dögunum.

Juventus er áfram á toppnum með nítján stig en Internazionale er í þriðja sætið með fimmtán stig.

Líkt og toppliðið þá hefur Internazionale ekki tapað leik í deildinni en er með fjóra sigri og þrjú jafntefli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×