Atvinnulíf

„Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Jóhann Már Helgason, forstöðumaður fyrirtækjasviðs Wolt á Íslandi og meðstjórnandi hlaðvarpsins Dr. Football, er snúsari, sem í heimilisverkunum segist komast betur frá því að skúra gólfið en að sjá um þvottinn. Þar eru meiri líkur en minni á að kvartað sé undan því að hann geri eitthvað vitlaust.  
Jóhann Már Helgason, forstöðumaður fyrirtækjasviðs Wolt á Íslandi og meðstjórnandi hlaðvarpsins Dr. Football, er snúsari, sem í heimilisverkunum segist komast betur frá því að skúra gólfið en að sjá um þvottinn. Þar eru meiri líkur en minni á að kvartað sé undan því að hann geri eitthvað vitlaust.   Vísir/Vilhelm

Jóhann Már Helgason, forstöðumaður fyrirtækjasviðs Wolt á Íslandi og meðstjórnandi í hlaðvarpinu Dr. Football, er þessi hefðbundna B-týpa sem hefur verið gert að aðlaga sig að samfélagslegum þörfum A-týpunnar.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Vekjaraklukkan á símanum hringir klukkan 07:30 á virkum dögum. Viðurkenni að í kjölfarið hefst bardagi við „snooze“ takkann sem yfirleitt skilar sér í því að maður er kominn á lappirnar um tíu mínútum síðar.

Stundum þarf ég að vakna fyrr, þegar Wolt eru með svokallaða „global“ fundi í gegnum fjarfundarbúnað, en þeir fundir hefjast klukkan sjö á morgnana, þar vinnur tímamismunurinn við Evrópu gegn manni.

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Það fyrsta sem ég geri er að kanna stöðuna á eldri dóttur minni, hún er 10 ára og er morgunhaninn í fjölskyldunni, yfirleitt er hún kominn fram úr á undan mér og fyrirskipar mér að græja nestið fyrir skólann og morgunmat. 

Fljótlega eftir það þá ræsi ég kaffivélina sem spilar lykilhlutverk á heimilinu á morgnana. Ég byrjaði seint að drekka kaffi, eða fyrir um fimm árum síðan, en núna er þetta brýnasta lífsnauðsyn um átta leytið til að koma sér af stað út í daginn.“

Hvort myndir þú frekar bjóða þig fram í: Að skúra eða ganga frá þvottinum?

Miðað við núverandi verkaskiptingu á heimilinu myndi ég alltaf taka fyrri valkostinn, að skúra gólfin. 

Ég kæmist betur frá því verkefni, þegar ég tek þvottamálin í mínar hendur að þá fylgja því yfirleitt alvarlegar athugasemdir frá öðrum fjölskyldumeðlimum, til dæmis að ég hafi stillt vélina vitlaust eða flokkað þvottinn með röngum hætti. 

Hins vegar hefur enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað gólfin, ekki enn að minnsta kosti.“

Jóhann segir allar líkur á að hann mæti ekki á fundi sem ekki eru bókaðir í dagatalið. Daglega uppfærir hann handskrifaðan verkefnalista í stílabók, sem hann segir svo sem ekki fullkomið skipulag en aðferð sem virkar.Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Ég er hægt og bítandi að koma mér inn nýja starfið mitt hjá Wolt á Íslandi en ég byrjaði þar í byrjun september. Það voru mikil viðbrigði að fara úr fyrirtæki sem telur tvo starfsmenn á skrifstofu yfir alþjóðlegt fyrirtæki sem telur yfir 12 þúsund starfsmenn í 29 löndum. Síðasta vika var sérlega skemmtileg þar sem ég heimsótti skrifstofur Wolt í Noregi á sama tíma og Wolt fagnaði tíu ára starfsafmæli sínu.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Ég reyni að nýta mér tæknina til hins ýtrasta hvort sem um ræðir verkefnastjórnunarkerfi eða dagatalið í tölvunni, í raun er það þannig að ef fundarboðið fer ekki í dagatalið þá eru allar líkur á að ég mæti ekki á fundinn. 

Að sama skapi er ég alltaf með minn einfalda „to-do“ lista handskrifaðan í stílabók sem ég uppfæri á hverjum einasta morgni, inn á þann lista fara hlutir sem ég verð að gefa mér tíma í yfir daginn, ekki fullkomið skipulag en virkar.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Ég er þessi hefðbundni næturhrafn, B-týpa, sem hefur verið gert að aðlaga mig að samfélagslegum þörfum A-týpunar. Ég reyni að vera kominn upp í rúmið um miðnættið en það tekst alls ekki alltaf, ætli heiðarlegasta svarið sé ekki yfirleitt um hálf eitt leytið, svo svífur maður inn í draumalandið hálftíma síðar.“


Tengdar fréttir

B-týpa sem vill verða A en þarf tíma til að „morgna sig“

Selma Rut Þorsteinsdóttir, yfirsköpunarstjóri á Pipar/TBWA auglýsingastofunni, segir fjölskylduna finnast það slæmt að hún borði ekki hakk. Í fjarveru hennar, er það því venjan að borða einhvers konar hakk-rétt daglega þar til hún kemur heim. 

„Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“

Gunnar Zoéga, forstjóri OK, gefur sjálfum sér 8 í einkunn aðspurður um hversu hress hann er á morgnana. Að sama skapi viðurkennir hann að vera frekar kvöldsvæfur. Enda segir hann góðan svefn skipta öllu máli.

Langaði svakalega mikið í sleik við George Clooney

Hödd Vilhjálmsdóttir, almannatengill og lögfræðingur hjá Kvis, segist vera kómísk blanda af einstaklingi sem fæddist 107 ára en er ung í anda. Hödd segir kaffivélina mjög elskað heimilistæki og nýtir morgnana í að læra ítölsku með Duolingo.

„Ég verð auðveldlega meyr en segi engum frá því“

Páll Pálsson fasteignasali á Heima er best, segir að eftir að testerónið fór að minnka og estrógenið að aukast geti hann tárast yfir nánast öllu sem hann horfir á. Páll leggur áherslu á „me time“ á morgnana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×