Innlent

Stjórn­völd verða að leggja fram lausnir fyrir 1. apríl

Lovísa Arnardóttir skrifar
Meginkrafa samninganefndar Eflingar var að tekið yrði á mönnunarvanda hjúkrunarheimilanna.
Meginkrafa samninganefndar Eflingar var að tekið yrði á mönnunarvanda hjúkrunarheimilanna. Vísir/Einar

Kjarasamningur Eflingar stéttarfélags við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) var samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta í atkvæðagreiðslu sem lauk í gær. Kjarasamningnum fylgdi samkomulag við stjórnvöld þar sem segir að stjórnvöld verði fyrir 1. apríl að leggja fram lausnir til að taka á mönnunarvanda hjúkrunarheimila. Verði það ekki gert getur Efling slitið samningi. 

Meginkrafa samninganefndar Eflingar var að tekið yrði á mönnunarvanda hjúkrunarheimilanna. 

Í tilkynningu kemur fram að samningurinn er fyrsti sjálfstæði kjarasamningurinn sem Efling gerir fyrir hönd félagamanna sem starfa á hjúkrunarheimilum. Áður hafa þeir fylgt kjarasamningum við ríkið. Alls samþykktu 93 prósent þeirra sem greiddu atkvæði samninginn.

Þá kemur einnig fram í tilkynningu að samningurinn gildi afturvirkt frá 1. apríl síðastliðnum . Því eigi samningsbundnar launahækkanir síðustu mánaða að greiðast nú um næstu mánaðamót. Félagsfólk er hvatt til að fara vel yfir launaseðla sína og sannreyna að allt hafi skilað sér.


Tengdar fréttir

Samningur Eflingar og SFV samþykktur

Kjarasamningur Eflingar við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu hefur verið samþykktur með 92,8 prósentum greiddra atkvæða.

Á­nægð með að stjórn­völd viður­kenni mönnunar­vandann

Efling undirritaði í nótt kjarasamning við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu sem nær til félagsmanna á hjúkrunarheimilum og sambærilegum stofnunum. Formaður Eflingar fagnar því að stjórnvöld viðurkenni loks mönnunarvanda hjúkrunarheimilanna. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×