Innlent

Einn á bráðamóttóku er rafskúta og reið­hjól lentu saman

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Verkefni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru af ýmsum toga í dag.
Verkefni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru af ýmsum toga í dag. Vísir/Vilhelm

Ökumaður rafskútu var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans í dag þegar rafskúta hans og reiðhjóllentu saman í Fossvogi í dag. 

Þetta kemur fram í fréttaskeyti lögreglunnar, þar sem kemur fram að ökumaður reiðhjólsins hygðist leita sjálfur á heilsugæslu ef þess reyndist þörf. Ekki liggur fyrir hve alvarlega ökumaður rafskútunnar reyndist slasaður. 

Þá var tilkynnt um annað umferðarslys í hverfi 108. Ekki urðu slys á fólki en slysið olli eignartjóni. Bíll var í kjölfarið dregin á brott með kranabíl. 

Í hverfi 110 var að auki tilkynnt um umferðarslys. Engan sakaði en bíll var dregin af vettvangi með kranabíl. 

Tveir ökumenn voru stöðvaðir í hverfi 105 og einn í hverfi 201 fyrir að nota farsíma við akstur án handfrjáls búnaðar. Málin voru afgreidd með sekt.

Þá var einn handtekinn vegna ofbeldis gagnvart opinberum starfsmanni. Sá var látinn laus að lokinni skýrslutöku. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×