Fótbolti

Að­eins tveir hafa skorað fyrr í lands­leik en Orri í gær

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Orri Steinn Óskarsson fagnar frábæru marki sínu í upphafi leiksins í gær.
Orri Steinn Óskarsson fagnar frábæru marki sínu í upphafi leiksins í gær. Vísir/Hulda Margrét

Orri Steinn Óskarsson kom íslenska liðinu í 1-0 á móti Tyrkjum í upphafi leiks á Laugardalsvellinum í gær og er þetta aðeins áttunda markið í sögu landsliðsins sem er skorað á þriðju mínútu eða fyrr.

Í raun hafa aðeins tveir hafa skorað fyrr í landsleik en Orri í gær en íslenska liðið hefur aðeins skorað tvö mörk á fyrstu eða annarri mínútu.

Metið er orðið 67 ára gamalt og verður seint slegið. Ríkharður Jónsson skoraði eftir aðeins sautján sekúndur í leik á móti Belgum í undankeppni HM 1958.

Leikurinn fór fram á Laugardalsvellinum 4. september 1957 en þrátt fyrir þetta draumabyrjun þá tapaðist leikurinn 5-2.

Sigurður Grétarsson komst næst því þegar hann skoraði á annarri mínútu í vináttulandsleik á móti Tyrkjum á Laugardalsvellinum í júlí 1991. Markið hans kom eftir aðeins 68 sekúndur og íslenska liðið vann leikinn á endanum 5-1.

Ríkarður Jónsson skoraði líka á þriðju mínútu í leik á móti Laugardalsvelli 1962 og síðan hafa fimm aðrir náð því að skora svona snemma.

Síðastur á undan Orra til að ná svona góðri byrjun var Davíð Kristján Ólafsson í 7-0 stórsigri á Liechtenstein í Vaduz í fyrra.

Tvö af þessum sjö mörkum komu beint úr aukaspyrnu en mark Arnars Gunnlaugssonar á móti Svíum 1995 og mark Þórðar Guðjónsson á móti Færeyjum 1999 komu á þriðju mínútu með skoti beint úr aukaspyrnu.

Jóhann Berg Guðmundsson skoraði einnig fyrsta markið sitt í þrennunni eftirminnilegu í Bern á þriðju mínútu.

  • Fljótastir til að skora í A-landsleik karla:
  • 1. mínúta Ríkharður Jónsson á móti Belgíu á Laugardalsvellinum 1957 (17 sekúndur)
  • 2. mínúta Sigurður Grétarsson á móti Tyrklandi á Laugardalsvellinum 1991 (68 sekúndur)
  • 3. mínúta Orri Steinn Óskarsson á móti Tyrklandi á Laugardalsvellinum 2024
  • 3. mínúta Ríkharður Jónsson á móti Noregi á Laugardalsvellinum 1962
  • 3. mínúta Arnar Gunnlaugsson á móti Svíþjóð í Solna 1995
  • 3. mínúta Þórður Guðjónson á móti Færeyjum í Þórshöfn 1999
  • 3. mínúta Jóhann Berg Guðmundsson á móti Sviss í Bern 2013
  • 3. mínúta Davíð Kristján Ólafsson á móti Liechtenstein í Vaduz 2023



Fleiri fréttir

Sjá meira


×