Innlent

Segir Svan­dísi að­eins eiga einn kost eftir „svipu­göng niður­lægingar“

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Össur sagði í annarri færslu í gær að Bjarni hefði skotið Svandísi ref fyrir rass með því að boða skyndilega til kosninga.
Össur sagði í annarri færslu í gær að Bjarni hefði skotið Svandísi ref fyrir rass með því að boða skyndilega til kosninga.

„Eftir það sem á undan er gengið, og eftir þau svipugöng niðurlægingar sem Bjarni og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins leiddu Svandísi í gegnum í atburðarrás gærdagsins, þá á Svandís því varla annan kost en þann að draga VG formlega út úr ríkisstjórninni.“

Þetta segir Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar og ráðherra, á Facebokk í morgun.

Hann segir það algjörlega á valdi Svandísar Svavarsdóttur, formanns Vinstri grænna, hvort Bjarni Benediktsson fær að sitja áfram sem forsætisráðherra fram að kosningum.

„Ef VG gerir engan ágreining við áform Bjarna um að óska eftir þingrofi án þess að biðjast lausnar fyrir ríkisstjórn sína heldur hann því áfram sem forsætisráðherra gegnum kosningabaráttuna með öllu því forskoti sem þyngd embættisins veitir. Hann mun þá eins og allir aðrir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa fullt og óskorað vald í sínum málaflokkum. Vill Svandís það?“ spyr Össur.

„Svo vill til að hún á völ á öðru. Svandís á þann leik að draga VG formlega út úr ríkisstjórninni, sem um leið tapar meirihluta sínum á Alþingi. Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar er þarmeð fallin. Forseti Íslands verður þá að fara í viðræður við leiðtoga allra flokka og kanna hver þeim finnst best fallinn til að leiða starfsstjórn framyfir kosningarnar. Harla ólíklegt er að niðurstaðan verði sú að benda á Bjarna Benediktsson.“

Össur segir Svandísi vart eiga annan kost í stöðunni en að sprengja ríkisstjórnina endanlega.

„Geri hún það ekki verður það í annað skiptið sem VG tryggir Bjarna í stól forsætisráðherra. Hvernig ætlar Svandís Svavarsdóttir að útskýra það fyrir þeim kjósendum á vinstri vængnum sem hún mun biðla til í nauðvörn næstu kosninga?

Önnur niðurstaða fæli í sér endanlega uppgjöf fyrir Sjálfstæðisflokknum og yrði líklega grafskrift hennar sem formanns og jafnvel VG sem flokks.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×