Fótbolti

Lið Adams Inga gæti farið á hausinn í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Adam Ingi Benediktsson sést hér svekkja sig í leik með íslenska 21 árs landsliðinu. Hann kom til Östersund í sumar frá Gautaborg.
Adam Ingi Benediktsson sést hér svekkja sig í leik með íslenska 21 árs landsliðinu. Hann kom til Östersund í sumar frá Gautaborg. Getty/Ross MacDonald/

Sænska knattspyrnufélagið Östersunds FK er í kapphlaupi við klukkuna í dag þar sem stjórnarmenn reyna allt til að forða félaginu frá gjaldþroti.

Íslendingafélagið skuldar sænska skattinum þrjár milljónir sænskra króna, tæpar fjörutíu milljónir í íslenskum krónum, og þarf að greiða skuldina í síðasta lagi í dag.

@Sportbladet

„Við erum ekki búin að gefast upp ennþá,“ sagði stjórnarformaðurinn Anders Cederberg við Aftonbladet.

Lifa í voninni

Östersunds FK sendi frá sér tilkynningu í gær um að félagið ætti ekki pening fyrir fyrrnefndri skuld. Félagið fékk frest í faraldrinum en nú er tíminn að renna út.

„Þetta er auðvitað erfið staða. Við vorum nálægt því að koma þessu í mark á föstudaginn en það gekk síðan ekki eftir. Við erum enn að reyna að finna leiðir og lifum enn í voninni,“ sagði Cederberg.

Fresturinn er til miðnættis í kvöld. Lýsi félagið sig gjaldþrota þá er ekki alveg ljóst hvort það fái að klára tímabilið. Það fer eftir ákvörðun fjárhaldsmanns verði félagið tekið til gjaldþrotaskipta.

Það eru fjórir leikir eftir og stjórnarformaðurinn telur að það sé öllum í hag að félagið fái að klára tímabilið.

„Það er því líklegra en ekki að við fáum að klára tímabilið. Það er í það minnsta mitt mat,“ sagði Cederberg.

Kom til félagsins um mitt sumar

Íslenski markvörðurinn Adam Ingi Benediktsson hefur spilað tólf leiki með liðinu í sumar í sænsku b-deildinni í ár. Hann kom til félagsins frá IFK Göteborg um mitt sumar.

Hinn 21 árs gamli Adam Ingi er því óvissu með framtíðina hjá sér eins og aðrir leikmenn félagsins. Samningur hans við sænska félagið er til loka desember 2026.

Östersund er í 13. sæti sænsku b-deildarinnar af sextán liðum. Tvö neðstu liðin falla beint en næstu tvö fara í umspil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×