Innlent

Er­lendur ferða­maður fannst látinn við Stuðlagil

Lovísa Arnardóttir skrifar
Nokkuð gott aðgengi er að gilinu. Sjúkrabílar og lögregla er á vettvangi auk björgunarsveita og kafara frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Nokkuð gott aðgengi er að gilinu. Sjúkrabílar og lögregla er á vettvangi auk björgunarsveita og kafara frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Aðsend

Kona á fertugsaldri, erlendur ferðamaður sem var á ferð í Stuðlagili við annan mann, fannst látin í Jökulsá skammt neðan við Stuðlagil skömmu fyrir klukkan fimm í dag. Hún var þá látin. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Lögreglunni á Austurlandi. 

Að leitinni komu björgunarsveitir frá Austurlandi áhöfn á þyrlu landhelgisgæslu, sjúkralið og lögregla. Lögreglan á Austurlandi fer með rannsókn málsins.

Tilkynnt var fyrst um það klukkan 14.30 að konan hefði fallið í ána. Í fyrstu tilkynningu lögreglunnar um málið kom fram að hún hefði sést fljóta í ánni en svo horfið sjónum. Töluverður viðbúnaður var á vettvangi en björgunarsveitir víða af Austurlandi voru kallaðar til og tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar. Í annarri þeirra voru ferjaðir kafarar frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Ekki er snjór á staðnum en nokkuð kalt og gæti verið ísing við ána.

Mikill fjöldi er við gilið við leit.Aðsend

Fyrri þyrla Landhelgisgæslunnar lagði af stað um korter yfir 15 samkvæmt upplýsingum frá Ásgeiri Erlendssyni upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar og svo önnur stuttu seinna. Seinni þyrlan flutti kafara frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins austur til að aðstoða við leit. 

Stuðlagil er í Efri-Jökuldal á Fljótsdalshéraði. Samkvæmt talningu Ferðamannastofu heimsækja um þúsund manns Stuðlagil á hverjum degi á sumrin en aðeins færri á veturna. Í október í fyrra heimsóttu um 400 manns svæðið.

Á myndinni allri sést hversu nálægt gilinu viðbragðsaðilarnir eru.Aðsend
Staðsetning Stuðlagils.Vísir/Tótla



Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×