Innlent

„Nauð­syn­legt að bregðast við“ en að­gerðum fækkar

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Aðalsteinn Arnarson segir að pólítík ráði för við ákvörðun um niðurgreiðslu.
Aðalsteinn Arnarson segir að pólítík ráði för við ákvörðun um niðurgreiðslu. vísir/kompás

Fjármagn streymir úr landi í tengslum við efnaskiptaaðgerðir. Á sama tíma og heilbrigðisyfirvöld segja nauðsynlegt að takast á við offituvandann eru slíkar aðgerðir á íslenskri einkastofu ekki niðurgreiddar. 

Í Kompás sem sýndur var í vikunni var fjallað um sprengingu í notkun þyngdarstjórnunarlyfja á borð við Ozempic og Wegovy. 

Lyfin eru öflugt tól í baráttunni við offitu en efnaskiptaaðgerðirnar hafa enn mesta verkun og geta lagað ýmsa kvilla á borð við sykursýki, háþrýsting og kæfisvefn.

„Síðan er hægt að horfa í aðra þætti eins og krabbamein. Það sem mjög margir vita ekki eða er lítið talað um er að yfirþyngd er sjálfstæður áhættuþáttur fyrir margar tegundir krabbameina. Þannig eru konur sem eru yfir komnar yfir 30 í þyngdarstuðli, þær eru í tvöfaldri hættu á að fá brjóstakrabbamein miðað við þær sem eru í kjörþyngd. Og þessar aðgerðir geta lækkað þessa tíðni um helming aftur,“ segir Aðalsteinn Arnarson, skurðlæknir á Klíníkinni.

Hrein pólitík

Á sama tíma og heilbrigðisyfirvöld segja nauðsynlegt að bregðast við offituvandanum eru efnaskiptaaðgerðir á Klíníkinni ekki niðurgreiddar. Og margir ferðast til útlanda til að leggjast undir hnífinn, sem er oft ódýrara.

„Þetta er nú bara hrein pólitík. Sú afstaða hefur ekki breyst að þessar aðgerðir eru ekki niðurgreiddar þegar þær eru gerðar úti í bæ eins og það er kallað. Það er hægt að fá niðurgreiðslu hjá sjúkratryggingum ef þú velur að fara í gegnum Landspítalann eða erlendis en þessi vinna eða pólitíska samstaða um að taka greiðsluþátttökuna hér innanlands hefur ekki skilað sér.“

Fjöldi þeirra sem fóru í efnaskiptaaðgerðir hjá Klíníkinni.vísir/grafík

 Árið 2021 fóru 926 í efnaskiptaaðgerðir hjá Klíníkinni og hefur þeim fækkað milli ára. Aðalsteinn segir fækkunina megi að hluta til rekja til þess að þyngdarstjórnunarlyfin hafi að einhverju leyti tekið við af aðgerðunum en efnahagsástandið spili einnig þátt í fækkuninni.

„Við vitum að aðgerðirnar eru þjóðhagslega hagkvæmar, það tekur ekki mörg ár þar til fólk er búið að borga aðgerðina upp ef við getum orðað það þannig… með minnkandi sjúkdómabyrgði, lyfjanotkun og slíku. Þannig kærkomið að fá betri aðkomu ríkis eða betri greiðsluþátttöku. En á sama tíma er mikilvægt að hafa góðan ramma utan um hverjir hafa gagn af slíkri aðgerð og það suma á við um lyfin.“


Tengdar fréttir

Skorti langtímarannsóknir á áhrifum Ozempic og Wegovy

Læknir segir skynsamlegt að setja vinnureglur um hvenær skuli ávísa þyngdarstjórnunarlyfjum og hvenær ekki. Það muni taka nokkur ár í viðbót áður en góður skilningur fáist á langtímaávinningi og mögulegum aukaverkunum af lyfjunum.

Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina

Sprenging hefur orðið í notkun þyngdarstjórnarlyfja á borð við Ozempic og Wegovy. Ætla má að þúsundir Íslendinga sprauti sig í von um að léttast. Lyfin eru sögð öflugt tól í baráttunni við offitu en aðgengi að þeim virðist stjórnlaust og læknir óttast misnotkun. Í Kompás skoðum við notkun þessara lyfja á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×