Innlent

Leynd yfir að­gerðum kennara og í beinni frá höllinni

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Sindri Sindrason les kvöldfréttir á Stöð 2 í kvöld.
Sindri Sindrason les kvöldfréttir á Stöð 2 í kvöld. Vilhelm

Skæruverkföll eru fram undan í átta skólum samþykki kennarar verkfall í atkvæðagreiðslu sem er hafin. Ekki hefur verið gefið upp í hvaða skólum kennarar hyggjast leggja niður störf en formaður Kennarasambands Íslands mætir í myndver og segir frá fyrirhuguðum aðgerðum og stöðu deilunnar í beinni í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Klippa: Kvöldfréttir 8. október 2024

Forsætisráðherra segir að ríkisstjórn sem ekki hafi burði til að ljúka málum, eigi að pakka saman. Formaður Vinstri grænna segir oddvita stjórnarflokkanna eiga eftir að ræða forgangsröðun mála og tímasetningu kosninga. Heimir Már Pétursson ræðir við formenn stjórnarflokkanna.

Forsetahjónin eru nú stödd í Kaupmannahöfn í fyrstu opinberu heimsókn Höllu Tómasdóttir. Heimsóknin er einnig sú fyrsta í tíð Friðriks tíunda á konungsstóli. Fréttamaður okkar Elín Margrét Böðvarsdóttir er stödd í Kaupmannahöfn og hefur fylgt þeim eftir í dag. Við verðum í beinni þaðan og sjáum myndir frá deginum.

Þá kynnum við okkur fyrirhugað húsnæði fyrir umsækjendur um alþjóðlega, sjáum myndir frá Flórída þar sem fólk er að flýja fellibylinn Milton og verðum í beinni frá Hörpu með Bríeti og hljómsveitinni ADHD sem troða saman upp í kvöld.

Í Sportpakkanum verður rætt við bræður sem dreymir um að spila saman fyrir íslenska landsliðið og í Íslandi í dag hittum við foreldra sem tóku málin í eigin hendur eftir að hafa átt erfitt með að finna íþróttalið fyrir son sinn sem er með Downs-heilkennið.

Þetta og margt fleira í opinni dagskrá á samtengdum rásum Bylgjunnar, Stöðvar 2 og Vísis klukkan 18:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×