Fótbolti

Dunne telur að Heimir gæti misst starfið strax

Sindri Sverrisson skrifar
Heimir Hallgrímsson er undir mikilli pressu að mati Richard Dunne, sem á sínum tíma lék 80 A-landsleiki.
Heimir Hallgrímsson er undir mikilli pressu að mati Richard Dunne, sem á sínum tíma lék 80 A-landsleiki. Samsett/Getty

Dagar Heimis Hallgrímssonar sem landsliðsþjálfari Írlands í fótbolta gætu verið taldir síðar í þessum mánuði, aðeins þremur mánuðum eftir að hann var ráðinn, að mati fyrrverandi landsliðsmanns Íra.

Gamla Manchester City-varnartröllið Richard Dunne tjáði sig um Heimi og stöðu hans í aðdraganda leikjanna við Finnland og Grikkland í Þjóðadeild UEFA, 10. og 13. október.

Heimir hefur aðeins stýrt Írum í tveimur leikjum en þeir töpuðust báðir, 2-0 á heimavelli gegn Englandi og Grikklandi, sem er svo sem í samræmi við gengi Íra síðustu misseri.

Heimir hefur bent á að svo virðist sem írska landsliðstreyjan sé of þung byrði fyrir leikmenn, og þeir nái ekki að njóta sín eins og þeir ættu að gera, en spurningin er hvort það breytist í Finnlandi á fimmtudaginn. Tapist sá leikur og leikurinn við Grikki telur Dunne að Heimir verði mögulega látinn fara, og að aðstoðarþjálfarinn John O‘Shea sé væntanlega klár í að taka aftur við sem aðalþjálfari.

Segir Heimi finna fyrir pressunni

„Ég held að Heimir Hallgrímsson finni nú þegar fyrir pressunni sem fylgir því að þjálfa Írland. Hann er með smá svigrúm vegna þess hve lengi írska knattspyrnusambandið var að finna stjóra, en ef þeir vinna hvorugan leikjanna við Finnland og Grikkland þá tel ég mögulegt að þeir fái nýjan mann inn,“ sagði Dunne við BetVictor, samkvæmt frétt Irish Mirror.

„Það kæmi mér verulega á óvart ef að John O‘Shea væri ekki tilbúinn að taka við ef þess væri óskað, miðað við hvernig hann var þegar hann tók við liðinu [innsk.: tímabundið síðasta vetur],“ sagði Dunne sem telur Heimi þurfa að stilla betur saman strengi í írska liðinu.

„Hann þarf að setja saman lið sem að stuðningsmenn virða og geta verið stoltir af. Við lítum ekki enn út eins og lið, og það er hlutverk stjórans að sjá til þess að við virðumst ekki vera ósamstilltir. Það vantar upp á skipulagið. Þetta eru tveir stórir leikir fyrir Hallgrímsson,“ sagði Dunne.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×