Innlent

Þor­björg ætlar sér fyrsta sætið

Atli Ísleifsson skrifar
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, ætlar sér að verða leiðtogi Viðreisnar í Reykjavík í komandi þingkosningum.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, ætlar sér að verða leiðtogi Viðreisnar í Reykjavík í komandi þingkosningum. Vísir/Vilhelm

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, sækist eftir fyrsta sætinu í prófkjöri Viðreisnar í Reykjavík sem fyrirhugað í tengslum við næstu alþingiskosningar sem munu að óbreyttu fara fram á næsta ári.

Þorbjörg greindi frá þessu í hlaðvarpi Björns Inga Hrafnssonar, Grjótkastinu, í gær. Þorbjörg leiddi lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í þingkosningunum 2021 og hlaut flokkurinn um átta prósent atkvæða.

Þingmaðurinn greindi frá því að til standi að halda sameiginlegt prófkjör fyrir Reykjavíkurkjördæmin tvö og gerir hún ráð fyrir að það fari fram snemma á næsta ári. Það sé í fyrsta sinn sem verði haldið slíkt prófkjör hjá flokknum fyrir þingkosningar.

„Þetta er mjög skemmtilegt verkefni og ég sé þetta fyrir mér ákveðið vítamínskot fyrir flokkinn. Það er líka frábært að fá mann eins og Jón Gnarr til liðs við flokkinn. Ég hef verið mikill aðdáandi hans,“ segir Þorbjörg. Greint var frá því í síðasta mánuði að Jón hefði gengið til liðs við Viðreisn og sagðist hann ætla sér stóra hluti og komast á þing.

„Ég er oddviti í öðru Reykjavíkurkjördæminu. Núna erum við að fara inn í prófkjör sem verður sameiginlegt prófkjör beggja Reykjavíkurkjördæmanna. Ég ætla að sækjast eftir fyrsta sætinu í því prófkjöri. Ég sé verkefnið þannig að í þessu prófkjöri sé Viðreisn og flokksfélagar í Viðreisn að velja sér leiðtoga sem geti skilað flokknum inn í ríkisstjórn, að ríkisstjórnarborðinu og í ríkisstjórnarsamstarf. Ég býð mig fram í fyrsta sæti vegna þess að ég held að það geti ég gert.“

Kosningar á næsta ári

Ekki liggur fyrir hvenær næstu þingkosningar fara fram en kjörtímabilinu lýkur næsta haust. Margir telja þó að þær muni fara fram í vor, sérstaklega eftir nýsamþykkta ályktun landsfundar Vinstri grænna um að ríkisstjórnarsamstarf Vinstri grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks sé að nálgast leiðarlok. Í ályktuninni sagði meðal annars að ganga verði til kosninga næsta vor.

Viðreisn fékk 8,4 prósenta fylgi á landsvísu í kosningunum 2021 og fimm þingmenn. Þorbjörg Sigríður og Hanna Katrín Friðriksson leiddu lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmum tveimur í kosningunum 2021 og náðu báðar inn á þing.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×