Erlent

„Ein versta nóttin“ í Beirút frá upp­hafi á­taka

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Beirút í morgun. 
Beirút í morgun.  AP

Ísraelsher gerði umgangsmiklar loftárásir á Beirút snemma í morgun. Árásirnar eru samkvæmt líbönskum miðlum þær umfangsmestu á svæðinu frá upphafi átakanna. Þá létu minnst nítján lífið í loftárásum Ísraela á mosku í Gasa í nótt. 

Samkvæmt heimildum Reuters féll sprengjuregn yfir borgina í þrjátíu mínútur. Þá hefur miðillinn eftir Ísraelsher að skotunum hafi verið beint að vopnageymslum Hezbollah-samtakanna í Beirút. Ráðstafanir hafi verið gerðar til að draga úr hættu á að almennum borgurum yrði meint af. 

Samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisyfirvöldum í Líbanon létust 23 í loftárásum Ísraela í landinu í gær. Þá hafi nærri tvö þúsund Líbanar látið lífið í átökunum síðustu daga. 

Sem fyrr segir segja líbanskir miðlar árásir næturinnar þær umfangsmestu frá upphafi átakanna. Blaðamaður BBC í Beirút segir nóttina eina þá verstu frá upphafi átakanna. 

Í umfjöllun Guardian segir að árásir hafi verið gerðar í grennd við alþjóðaflugvöllinn í Beirút, en þaðan hefur fjöldi fólks flúið land undanfarna daga. 

Í tæpa viku hefur Ísraelsher gert loftárásir á úthverfi Beirút. Ísraelsher hóf áhlaup á nokkra staði Líbanon á þriðjudaginn og hefur beint skotum sínum að vígamönnum Hezbollah-samtakanna.

Minnst 23 létu lífið í loftárás Ísraela á mosku og skóla á Gasa í nótt, samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisyfirvöldum á Gasa. Ísraelsher sagði skotum beggja árása hafa verið beint að Hamasliðum en í frétt AP segir að ekki hafi fengist sönnun fyrir því. 


Tengdar fréttir

Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja

Ísraelski herinn sagði íbúum 25 bæja og þorpa í sunnanverðu Líbanon í dag að yfirgefa heimili sín. Byggðirnar eru norður af Litani-á en hún markar svæði sem átti að vera nokkurs konar hlífðarsvæði samkvæmt ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá 2006 og þykir yfirlýsingin til marks um mögulega útvíkkun innrásar Ísraela í Líbanon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×