Lífið

Áttu að nefna kvenmannsnöfn sem byrja á D og F

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtileg viðureign milli KR og Keflavík.
Skemmtileg viðureign milli KR og Keflavík.

Sextán liða úrslitin í Kviss héldu áfram á laugardagskvöldið þegar KR og Keflavík mættust. Í liði KR voru þau Gísli Marteinn Baldursson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir.

Lið Keflavíkur var skipað þeim Valdimari Guðmundssyni og Sólborgu Guðbrandsdóttur.

Í liðnum fimmfaldur áttu bæði lið að nefna til sögunnar algengustu kvenmannsnöfnin sem byrja á ákveðnum bókstaf. KR átti að nefna nöfn sem byrja á F og Keflavík nöfn sem byrja á bókstafnum D.

Þetta reyndist erfiðara en menn hefðu mögulega haldið fyrir fram eins og sjá má hér að neðan.

Klippa: Áttu að nefna kvenmannsnöfn sem byrja á D og F





Fleiri fréttir

Sjá meira


×