Innlent

Tveir teknir með þýfi á leið í Nor­rænu

Árni Sæberg skrifar
Brotist var inn í verslanir Elko í Lindum í Kópavogi og í Skeifunni.
Brotist var inn í verslanir Elko í Lindum í Kópavogi og í Skeifunni. Vísir/Vilhelm

Þrír sitja nú í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á innbrotum í verslanir Elko í byrjun síðustu viku. Tveir þeirra voru handteknir þegar þeir voru á leið í Norrænu með hluta þýfisins. Þremur hefur þegar verið sleppt úr haldi.

Í fréttatilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að fjórir hafi verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins í síðustu viku, en þremur þeirra síðan sleppt úr haldi. Fjórði maðurinn hafi hins vegar verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til næstkomandi föstudags, 4. október. 

Hinir tveir, sem einnig sitji í gæsluvarðhaldi, hafi verið handteknir á Austfjörðum fyrir helgina og í kjölfarið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til miðvikudagsins 2. október.

Í frétt Austurfréttar um málið segir að mennirnir hafi verið handteknir þegar þeir voru á leið í gegnum innritunarröð Norrænu síðasta miðvikudag. Haft er eftir Heimi Ríkharðssyni, aðstoðaryfirlögregluþjóni hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, að þeir hafi verið með hluta þýfisins í fórum sínum.

Í tilkynningu segir að rannsókn málsins sé mjög umfangsmikil, en miði ágætlega. Lagt hafi verið hald á lítinn hluta þess sem stolið var.


Tengdar fréttir

Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi

Þýfi að verðmæti tugmilljóna króna úr tveimur verslunum Elko á höfuðborgarsvæðinu er enn ófundið. Sjö voru handteknir í tengslum við málið en um er að ræða Rúmena sem hafa ekki búsetu hér á landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×