Handbolti

Elliði Snær frá­bær í sigri Gum­mers­bach

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Elliði Snær í leik með íslenska landsliðinu.
Elliði Snær í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Vilhelm

Íslendingalið Gummersbach vann tveggja marka sigur á Bietigheim-M. í þýsku efstu deildar karla í handbolta. Elliði Snær Viðarsson átti frábæran leik fyrir lærisveina Guðjóns Vals Sigurðssonar.

Elliði Snær skoraði sex mörk sem hjálpuðu heldur betur Gummersbach sem vann leikinn 32-30. Teitur Örn Einarsson komst ekki á blað. Gummersbach situr í 6. sæti deildarinnar með sex stig að loknum fimm leikjum.

Í Póllandi stóð Viktor Gísli Hallgrímsson vaktina í marki toppliðs Wisla Plock sem vann sjö marka sigur á Górnik Zabrze, lokatölur 27-20. Wisla er á toppi deildarinnar með fjóra sigra að loknum fjórum leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×