Skytturnar skoruðu fimm

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Raheem Sterling skoraði sitt fyrsta mark fyrir Arsenal í kvöld.
Raheem Sterling skoraði sitt fyrsta mark fyrir Arsenal í kvöld. Giuseppe Maffia/Getty Images

Arsenal átti ekki í teljandi vandræðum með C-deildarlið Bolton Wanderers í enska deildarbikar karla í knattspyrnu. Lokatölur á Emirates-leikvanginum 5-1.

Þrátt fyrir að hinn gríðarlega ungi Jack Porter hafi verið í marki heimaliðsins þá stillti Mikel Arteta upp nokkuð sterku liði. Enski landsliðsmaðurinn Declan Rice braut ísinn á 16. mínútu og hinn 17 ára gamli Ethan Nwaneri tvöfaldaði forystuna eftir undirbúning Raheem Sterling.

Nwaneri var aftur á ferðinni í upphafi síðari hálfleiks, að þessu sinni eftir undirbúning Rice. Gestirnir minnkuðu muninn í 3-1 áður en Sterling bætti fjórða marki Arsenal við. 

Það var síðan varamaðurinn Kai Havertz sem skoraði fimmta mark Arsenal á 77. mínútu og þar við sat, lokatölur 5-1 og Arsenal komið áfram.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira