Erlent

Enn einn leið­togi Hezbollah felldur

Samúel Karl Ólason skrifar
Ein af fjölmörgum loftárásum sem Ísraelar hafa gert í Líbanon í dag.
Ein af fjölmörgum loftárásum sem Ísraelar hafa gert í Líbanon í dag. AP/Hussein Malla

Forsvarsmenn ísraelska hersins segjast ætla að halda árásunum sínum gegn Hezbollah í Líbanon áfram og að meiri kraftur verði settur í þær. Yfirvöld í Líbanon segja 558 hafa fallið í árásum Ísraela á undanförnum tveimur dögum.

Ísraelar segjast gera að mestu árásir á innviði Hezbollah í suðurhluta Líbanon og að árásirnar í morgun hafi verið gerðar á byggingar þar sem vopn voru geymd, eldflaugaskotpalla, stjórnstöðvar og aðra innviði. Enn einn af leiðtogum samtakanna var felldur í loftárás í Beirút í dag.

Ísraelar hafa fellt þó nokkra af leiðtogum samtakanna.

Þeir segja myndbönd af árásum í nótt og í morgun sýna frekari sprengingar í kjölfar árásanna og að það sanni að sprengiefni hafi verið þar.

Sjá einnig: Segir að Hezbollah muni skilja skila­boðin

Daniel Hagari, talsmaður ísraelska hersins, sagði í morgun að Hezbollah-liðar hafðu skotið um níu þúsund eldflaugum að Ísrael frá því í október í fyrra. Þar af um sjö hundruð á undanfarinni viku.

„Við sækjumst ekki eftir stríði,“ sagði Hagari. „Við erum að binda enda á ógn.“ Hann sagði að Ísraelar myndu gera hvað sem er til að ná markmiðum sínum. Gagnrýndi hann Hezbollah fyrir að skýla sér bakvið óbreytta borgara með því að fela vopn og eldflaugar í þorpum.

Loftvarnarkerfi Ísrael hafa verið mjög virk í morgun og segja Ísraelar að rúmlega hundrað eldflaugum hafi verið skotið yfir landamærin.AP/Ohad Zwigenberg

Eins og áður hefur komið fram hafa 558 fallið í árásum Ísraela síðustu tvo daga, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Líbanon og þar af fimmtíu börn og 94 konur. 1.835 eru sagðir hafa særst.

Hér að neðan má sjá myndbönd af nokkrum árásum Ísraela frá því í nótt og í morgun, sem herinn hefur birt.

Herzi Halevi, formaður herforingjaráðs Ísrael, sagði í morgun að ekki stæði til að veita Hezbollah hvíld. Herinn myndi frekar gefa í og auka árásir gegn hryðjuverkasamtökunum.

„Hezbollah má ekki fá pásu,“ sagði Halevi, samkvæmt frétt Times of Israel.

„Við munum auka aðgerðir okkar í dag og styrkja okkur á öllum vígstöðvum.“

Ísraelar hafa gert árásir í þremur bylgjum í dag. Að minnsta kosti ein árás var gerð í Beirút skömmu fyrir hádegi að íslenskum tíma. Heimildarmenn fjölmiðla ytra segja að árásin hafi beinst að einum af leiðtogum samtakanna.

Reuters hefur eftir heimildarmönnum sínum í Líbanon að Ibrahim Qubaisi, yfirmaður eldflaugasveita Hezbollah, hafi fallið í árásinni.


Tengdar fréttir

Skiptast á eldflaugum í massavís

Ísraelski herinn og Hezbollah hafa skotið fjölda eldflauga þvers og kruss yfir landamæri Ísrael og Líbanon í nótt og í gær. Árásirnar hafa líklega aldrei verið jafn umfangsmiklar í hvora áttina frá því Hezbollah hóf árásir á Ísrael í október í fyrra, eftir að Ísraelar hófu hernað sinn á Gasaströndinni.

Hafa séð Hezbollah fyrir símboðum í tvö ár

Ísraelar hafa selt meðlimum Hezbollah-hryðjuverkasamtakanna símboða sem þeir framleiddu sjálfir gegnum skúffufélög frá árinu 2022. Þegar leiðtogi samtakanna fordæmdi notkun snjallsíma fyrr á þessu ári var framleiðslan aukin til muna og þúsundir símboða voru seldir til Líbanon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×