Formúla 1

Þjarmað að Ver­stappen á blaða­manna­fundi

Aron Guðmundsson skrifar
Max Verstappen, ökumaður Formúlu 1 liðs Red Bull Racing
Max Verstappen, ökumaður Formúlu 1 liðs Red Bull Racing Vísir/Getty

Ríkjandi Formúlu 1 heimsmeistarinn Max Verstappen, ökumaður Red Bull Racing, segist munu aka fyrir liðið á næsta tímabili. Þjarmað var að Hollendingnum á blaðamannafundi í dag en miklar vangaveltur hafa verið ríkjandi um framtíð hans í Formúlu 1.

Verstappen er þrefaldur heimsmeistari ökumanna í Formúlu 1 en allt frá upphafi yfirstandandi tímabils hafa verið á kreiki orðrómar þess efnis að Verstappen gæti haldið á önnur mið eftir tímabilið og hefur þá lið Mercedes verið nefnt til sögunnar sem mögulegur áfangastaður fyrir Hollendinginn. 

Framundan er keppnishelgi á heimavelli Red Bull í Spielberg í Austurríki og þangað var Verstappen mættur í dag á blaðamannafundi þar sem að þjarmað var að honum og og hann krafinn svara um framtíð sína í mótaröðinni.

Þar sagði Verstappen hundrað prósent lýkur á því að hann myndi aka fyrir Red Bull Racing á næsta tímabili. 

„Auðvitað eiga alls konar samtöl sér stað en það sem skiptir mestu máli er að við verðum með mjög samkeppnishæfan bíl í framtíðinni. Það er mjótt á munum núna en við erum að vinna vel saman sem lið við það að bæta okkur. Og að sjálfsögðu, líkt og ég hef sagt við liðsfélaga mína, erum við að vinna vel og einbeita okkur að næsta ári og reynum þá aftur að vera samkeppnishæfir.“

Verstappen stefnir hraðbyri í átt að sínum fjórða heimsmeistaratitli í Formúlu 1 en er þó að fá meiri mótspyrnu í ár heldur en raunin var í fyrra. Er þar helst horft til Bretans Lando Norris hjá liði McLaren í þeim efnum en Verstappen er með sextíu og níu stiga forystu á toppi stigakeppni ökumanna þegar að fjórtán keppnishelgar eru eftir af tímabilinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×