Bragðdaufir Eng­lendingar tryggðu sér sigur í riðlinum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Englendingar eru komnir í 16-liða úrslit.
Englendingar eru komnir í 16-liða úrslit. Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images

England tryggði sér sigur í C-riðli Evrópumótsins í fótbolta er liðið gerði markalaust jafntefli gegn Slóveníu í kvöld. Leikir Englands til þessa hafa ekki verið neinar flugeldasýningar og ekki varð nein breyting á því í kvöld.

Enska liðið var mun meira með boltann í leik kvöldsins, en ekki er hægt að segja að liðið hafi vaðið í opnum marktækifærum.

Besta færi leiksins fékk framherjinn Harry Kane á 40. mínútu, en inn vildi boltinn ekki og staðan í hálfleik því 0-0.

Síðari hálfleikur bauð ekki upp á mikið meira en sá fyrri. Englendingar héldu boltanum vel innan liðsins, en færin létu á sér standa.

Fór það því svo að lokum að niðurstaðan varð markalaust jafntefli og liðin skiptu stigunum bróðurlega á milli sín. Englendingar eru þar með búnir að tryggja sér sigur í C-riðli með fimm stig og eru á leið í 16-liða úrslit. Slóvenar enda hins vegar með þrjú stig í þriðja sæti og fylgja Englendingum upp úr riðlinum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira