Fimm marka veisla og Austurríki tryggði sér óvænt toppsætið Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. júní 2024 15:30 Austurríkismenn tryggðu sér sigur í D-riðli. Dan Mullan/Getty Images Auturríki vann óvæntan 3-2 sigur er liðið mætti Hollandi í lokaumferð D-riðils á EM í fótbolta í dag. Með sigrinum rændu Austurríkismenn toppsæti riðilsins af Hollendingum og Frökkum. Austurríska liðið tók forystuna strax á sjöttu mínútu leiksins þegar Donyell Malen varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net. Reyndist það eina mark fyrri hálfleiksins og staðan því 1-0 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Austria lead in Berlin 🇦🇹#EURO2024 | #NEDAUT pic.twitter.com/77nWLwj5pS— UEFA EURO 2024 (@EURO2024) June 25, 2024 Cody Gakpo jafnaði þó metin fyrir Hollenska liðið strax á annarri mínútu síðari hálfleiks en Romano Schmid kom Austurríki yfir á nýjan leik eftir rétt tæplega klukkutíma leik. Þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka jöfnuðu Hollendingar metin á ný. Þar var Memphis Depay á ferðinni eftir stoðsendingu frá Wout Weghorts, en aðeins fimm mínútum síðar kom Marcel Sabitzer Austurríkismönnum yfir í þriðja og síðasta sinn og tryggði Austurríska liðinu 3-2 sigur. A massive win for Austria! 🇦🇹They finish top of Group D 👏#EURO2024 | #NEDAUT pic.twitter.com/WQgeogPbEc— UEFA EURO 2024 (@EURO2024) June 25, 2024 Sigurinn þýðir að Austurríki endar með sex stig í D-riðlinum, en Hollendingar enda með fjögur. Þar sem Frakkar gerðu óvænt 1-1 jafntefli gegn Pólverjum enda Austurríkismenn á toppi riðilsins, Frakkar í öðru sæti og Hollendingar því þriðja. Fótbolti EM 2024 í Þýskalandi