Evra mætti með Mbappé-grímuna í sjónvarpið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. júní 2024 13:00 Patrice Evra og Mbappé-gríman fræga. vísir/getty Patrice Evra, fyrrverandi leikmaður Manchester United og franska landsliðsins, brá á leik þegar hann greindi leik Frakklands og Hollands á EM í frönsku sjónvarpi.
Kylian Mbappé, fyrirliði franska landsliðsins, nefbrotnaði í leiknum gegn Austurríki fyrir viku. Hann æfði í kjölfarið með andlitsgrímu í frönsku fánalitunum. Mbappé var hins vegar með svarta grímu þegar hann sat á bekknum í markalausu jafntefli Frakka og Hollendinga á föstudaginn. Evra var gestur hjá Sony Sports Network og hjálpaði til við að greina leikinn. Hann nýtti líka tækifærið til að sprella og setti upp Mbappé-grímuna við mikla kátínu áhorfenda. Búist er við því að Mbappé spili leikinn gegn Póllandi í lokaumferð riðlakeppninnar á morgun. Hann mun þó ekki vera með þrílitu grímuna í leiknum því samkvæmt reglum UEFA verða allir slíkir hlutir að vera einlitir. Mbappé spilaði hins vegar með grímuna skrautlegu þegar Frakkar unnu U-21 árs lið Paderborn í æfingaleik á laugardaginn með sjö mörkum gegn engu. Mbappé skoraði tvö mörk og lagði upp tvö í leiknum sem fór fram fyrir luktum dyrum. Frakkar eru í 2. sæti D-riðils Evrópumótsins með fjögur stig. Pólverjar eru stigalausir og úr leik. Hollendingar eru á toppi riðilsins með fjögur stig en Austurríkismenn eru í 3. sætinu með þrjú stig.
EM 2024 í Þýskalandi Mest lesið Botna ekkert í Aþenu: „Margt við þetta lið Hörður minn sem ég átta mig ekki á“ Körfubolti Messi skrópaði í Hvíta húsið Fótbolti Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Fótbolti Aron spilar ekki fyrr en í milliriðli Handbolti „Vonandi flyt ég heim til Grindavíkur áður en ég dey“ Körfubolti Mo Salah skýtur á Carragher Enski boltinn Lech Poznan að kaupa Gísla: Mættur í læknisskoðun Fótbolti Segir að Forest fari í titilbaráttu með sigri á Liverpool Enski boltinn Nýja elsta kona heims elskar fótbolta Fótbolti Halla forseti bauð þeim báðum á Bessastaði Sport Fleiri fréttir Elon Musk sagður vilja kaupa Liverpool Chelsea vill fá Guehi aftur Elfsborg að kaupa Júlíus Magnússon Segir að Forest fari í titilbaráttu með sigri á Liverpool Son framlengir við Spurs Lech Poznan að kaupa Gísla: Mættur í læknisskoðun West Ham búið að bjóða Potter starfið Orðaður við íslenska landsliðið en þykir líklegur til að taka við Molde „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ Segir fótboltaguðina á móti Luton Milan og Juventus ásælast framherja United Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Messi skrópaði í Hvíta húsið Nýja elsta kona heims elskar fótbolta Mo Salah skýtur á Carragher Nottingham Forest upp að hlið Arsenal AC Milan tók Ofurbikarinn fyrir framan nefið á nágrönnum sínum Hvíldu stórstjörnurnar sínar en brunuðu áfram í bikarnum Sir Alex og United goðsagnir í jarðarför: „Hún hefði kunnað að meta það“ Van Dijk sáttur við frammistöðu Trents á móti Man. United Keane tekur við sigursælasta félagi Ungverjalands Kenndi Zirkzee um klúðrið hjá Maguire Hlín endursamdi við Kristianstad Guardiola vill fá þrennu-Grealish aftur Littler fær að sýna bikarinn á Old Trafford Fékk að halda áfram að spila þrátt fyrir að hafa fengið rautt Gerrard að verða afi Segir Trent frekar eiga heima í Tranmere en Real Madríd Glódísar-æði hefur gripið um sig: „Ég kom til að horfa á Glódísi“ Vill fá útlending eða Rúnar Kristins sem næsta landsliðsþjálfara Sjá meira