Stórmeistarajafntefli í Leipzig Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 21. júní 2024 20:55 Xavi Simons hélt hann hefði skorað sigurmarkið. AP Photo/Antonio Calanni Holland og Frakkland gerðu markalaust jafntefli í síðasta leik dagsins á EM karla í fótbolta. Stig á bæði lið þýðir að þau eru jöfn í efstu tveimur sætum D-riðils að loknum tveimur leikjum. Kylian Mbappé var ekki með Frakklandi í dag eftir að nefbrotna í fyrsta leik mótsins. Þrátt fyrir það var búist við nokkuð skemmtilegum leik en annað kom á daginn. Holland lagði rútunni og sótti lítið á meðan Frakkar fengu betri færi en tókst ekki að nýta þau. Úr leik kvöldsins.AP Photo/Hassan Ammar Hinn léttleikandi Xavi Simons kom boltanum í netið í síðari hálfleik með frábæru skoti eftir að Mike Maignan, markvörður Frakklands, hafði varið boltann út í teig. Markið var dæmt af þar sem Maignan, markvörður Frakklands, gat ekki skutlað sér á eftir boltanum því hinn hollenski Denzel Dumfries stóð í vegi hans. Þar sem Dumfries var rangstæður var markið dæmt af. Hvort Maignan hefði náð boltanum er svo allt önnur saga. Xavi Simons thought he had his second-ever Netherlands goal in a 𝐦𝐚𝐬𝐬𝐢𝐯𝐞 moment against France. ...Then VAR overturned it 💔 pic.twitter.com/HcEcPtHQug— B/R Football (@brfootball) June 21, 2024 Frakkar sóttu örlítið meira undir lok leiks en á endanum var markalaust jafntefli niðurstaðan. Bæði lið því með fjögur stig í D-riðli að loknum tveimur leikjum. Austurríki kemur þar á eftir með þrjú stig á meðan Pólland er án stiga. Fótbolti EM 2024 í Þýskalandi