Piparúði á mótmælendur barst að þingmönnum Pírata Sólrún Dögg Jósefsdóttir og Lovísa Arnardóttir skrifa 12. júní 2024 22:22 Andrés Ingi Jónsson þingmaður pírata segir viðbrögð lögreglu hafa komið sér á óvart. Aðsend Lögregla beitti piparúða á mótmælendur fyrir utan Alþingishúsið í kvöld. Nokkrir þingmenn Pírata voru á svæðinu þegar piparúðanum var hleypt af og barst hluti piparúðans að þeim svo þá sveið í augun.
Indriði Ingi Stefánsson varaþingmaður Pírata var á svæðinu, ásamt Andrési Inga Jónssyni, Gísla Rafni Ólafssyni og Lenyu Rún Taha Karim þingmönnum Pírata, þegar piparúðanum var beint á mótmælendur. „Við vorum þarna að taka þátt og styðja þessi eðlilegu og lýðræðislegu mótmæli,“ segir Indriði í samtali við fréttastofu. Hann segir lögreglu hafa beitt úðanum án viðvörunar og beint honum að mótmælendum. Hann segir úðanum ekki hafa verið beint að þingmönnum Pírata en hluti af piparúðaskýinu hafi borist til þeirra áður en þau áttu möguleika á að víkja. Mótmælendur á vegum Palestínuhreyfingarinnar létu í sér heyra meðan eldhúsdagsumræður fóru fram í Alþingishúsinu.Aðsend En meidduð þið ykkur? „Þetta sveið smá í augun en vorum annars bara góð,“ segir Indriði. Úðinn rifinn fljótt upp Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, var einnig á mótmælunum. Hann segir viðbragð lögreglu hafa komið sér á óvart. „Það kom mér á óvart að lögreglan virtist ekki vera að reyna að róa aðstæður. Að ýta við fólki til að opna fyrir bílastæðin, heldur var piparúðinn rifinn fljótt upp,“ segir Andrés Ingi. Hann segir að sér hafi ekki staðið nein ógn af hópnum sem mótmælti. Hann hafi verið hávær, en lítill. „Og það telst varla brýnast í heimi að losa bílakjallarann meðan megnið af þingheimi er ennþá inni í þinghúsi í eftirpartýi eftir eldhúsdag.“ Piparúðabrúsi í hönd lögreglumanns.Aðsend „Þau eru ekki búin að vera friðsamleg,“ segir Kristján Helgi Þráinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn um mótmælin við Alþingishúsið í kvöld. Hann segir mótmælendur hafa kveikt á blysum og hent þeim og reyk að Alþingishúsinu. Auk þess hafi þau sett matarlit á hurð Alþingis. Hann segir einn lögreglumann hafa beitt piparúða og að hann hafi líklega farið yfir nokkra aðila. „Við vorum með aukamenn til staðar út af mótmælunum og svo kölluðum við til bíla sem eru í umferð eins og við þurftum til að leysa verkefnið.“ Lögregla segir mótmælin ekki hafa verið friðsæl.Aðsend
Átök í Ísrael og Palestínu Lögreglumál Alþingi Mest lesið Ferðamenn lentu í vandræðum á bíl keyrðum 250 þúsund kílómetra Innlent Banaslys á byggingarsvæði á Akranesi Innlent Agnes segist niðurlægð og vill leita til dómsstóla Innlent „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Erlent Sofnaði eftir fjórtán mínútna akstur og olli banaslysi Innlent Dýrara að taka strætó til Hornafjarðar en að fljúga til Parísar Innlent Biden hikandi og hás í fyrri kappræðum kosninganna Erlent Ísklumpur féll á ferðamann Innlent Nýtt eldgos líklegt Innlent Um 220 einstaklingar verið flaggaðir vegna ógnandi hegðunar á spítalanum Innlent Fleiri fréttir Hélt fyrst að innbrotsþjófurinn væri sölumaður „Hótanir eru að færast nær fjölskyldum og heimilum“ Birta viðkvæmar upplýsingar um lögreglumenn á netinu „Stökk upp í rúm og sparkaði ítrekað í höfuðið á honum“ Fá svæði á líkama þar sem voru engir áverkar Flug frá Keflavík til Köben taki styttri tíma en meðaltími nauðgunar Þriggja ára dómi fyrir að nauðga eiginkonu snúið við Vestfirðingar segja ítrekuð svik í vegamálum óboðleg Dráttarbáturinn Hrafn Jökulsson standsettur Gamla fólkið þarf að greiða fyrir sundferðina Ferðamenn lentu í vandræðum á bíl keyrðum 250 þúsund kílómetra Þórkatla tekið við 400 eignum Banaslys á byggingarsvæði á Akranesi Geðlæknar ósammála um ástand Dagbjartar Nýtt eldgos líklegt Um 220 einstaklingar verið flaggaðir vegna ógnandi hegðunar á spítalanum Ísklumpur féll á ferðamann Kappræður í Bandaríkjunum og stýrivextir lækka ekki strax „Þetta er ekkert ódýrt, við tökum alveg undir það“ Agnes segist niðurlægð og vill leita til dómsstóla Mesta hviðan meira en fimmtíu metrar á sekúndu Sofnaði eftir fjórtán mínútna akstur og olli banaslysi Unnur Anna nýr forseti Heilbrigðisvísindasviðs Heimta aukafund og „myndarlega“ vaxtalækkun Hækka fargjöld í strætó Dýrara að taka strætó til Hornafjarðar en að fljúga til Parísar Hörður Ellert dæmdur fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur sinni Hart tekist á um öldungaráð borgarinnar Efndu til gjörnings við Lækjartorg Á sér engar málsbætur vegna hrottafenginna brota gegn eiginkonu Sjá meira