Golf

Woods segir að Opna banda­ríska muni reyna líkam­lega á kylfinga

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Tiger Woods með augun á boltanum.
Tiger Woods með augun á boltanum. Vísir/EPA-EFE/JUSTIN LANE

Opna bandaríska meistaramótið í golfi stærir sig af því að vera ein erfiðasta prófraun kylfinga og Tiger Woods tekur svo sannarlega undir það.

Aðeins fjórir kylfingar hafa lokið leik undir pari síðustu þrjú skipti sem Opna bandaríska fer fram á Pinehurst-vellinum í Norður-Karólínu. Mótið fer fram í 124. sinn um komandi helgi og er búist við að verði kylfingum óþægur ljár í þúfu líkt og síðustu ár.

Hinn 48 ára gamli Woods hefur unnið Opna bandaríska þrisvar sinnum á glæstum ferli sínum og veit hvað þarf til að sigra þetta strembna mót. Hann býst við að mótið verði líkt og árið 2005 þegar það mátti líkja spilamennsku kylfinga við borðtennis þar sem kúlunni var skotið fram og til baka yfir flötina.

„Þetta gæti verið eitt af þessum mótum þar sem skorið eftir fyrsta hring er það lægsta sem við munum sjá.“

„Þetta verður frábær prófraun og líkamleg barátta milli kylfinga frá upphafi til enda. Þetta verður frábær skemmtun fyrir okkur öll,“ sagði Woods um komandi mót.

Opna bandaríska fer fram frá 13. til 16. júní og verður í beinni á Vodafone Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×