Formúla 1

Perez fram­lengir og fram­tíð Sainz enn í lausu lofti

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Sergio Perez verður áfram í herbúðum Red Bull næstu tvö árin, en óvíst er hvað Carlos Sainz mun gera.
Sergio Perez verður áfram í herbúðum Red Bull næstu tvö árin, en óvíst er hvað Carlos Sainz mun gera. Bryn Lennon - Formula 1/Formula 1 via Getty Images

Sergio Perez, ökumaður Red Bull í Formúlu 1, skrifaði í gær undir nýjan tveggja ára samning við liðið.

Perez hefur ekið fyrir Red Bull frá árinu 2021 og mun halda því áfram út tímabilið 2026 í það minnsta. Með liðinu hefur hann unnið fimm keppnir og endað í öðru sæti í heimsmeistaramóti ökumanna árið 2023.

Það að Perez sé búinn að framlengja samningi sínum við Red Bull setur einnig framtíð annarra ökumanna í uppnám. Daniel Ricciardo, ökumaður systurfélags Red Bull, RB-Honda RBPT, og Carlos Sainz, ökumaður Ferrari, höfðu báðir verið orðaðir við sætið hjá Red Bull.

Ricciardo var þriðji ökumaður Red Bull á síðasta tímabili og óvíst er með framtíð Sainz eftir að tilkynnt var að Lewis Hamilton myndi taka við hans sæti hjá Ferrari á næsta tímabili.

Alls eru níu sæti enn ófyllt fyrir næsta tímabil í Formúlu 1 og því ljóst að langur kapall á eftir að eiga sér stað fyrir fyrstu keppni ársins 2025. Talið er líklegt að Sainz muni færa sig yfir til Williams eða Sauber eftir tímabilið, en tíminn verður þó að leiða það í ljós hvar hann endar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×