Innlent

Óvissuástandi af­lýst fyrir norðan og austan

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Myndin er af snjóflóði í Múlakollu
Myndin er af snjóflóði í Múlakollu Veðurstofan

Óvissustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið aflýst á Austfjörðum og Norðurlandi.

Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að veðrið er að mestu gengið niður en gera megi ráð fyrir austan skafrenningi til fjalla á Tröllaskaga í dag en lítilli úrkomu. Á Austfjörðum spáir hægri norðaustanátt með lítilsháttar éljum en lægir og styttir upp með deginum, segir ennfremur.

Þá segir að fáar snjóflóðatilkynningar hafi borist síðustu daga en skyggni hefur verið lítið.

„Gera þarf ráð fyrir að snjórinn geti enn verið óstöðugur og að fólk sem heldur til fjalla geti sett af stað snjóflóð þegar það ferðast um brattar brekkur,“ segir að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×