Innlent

Katrín gefur kost á sér

Árni Sæberg skrifar
Katrín Jakobsdóttir býður sig fram til forseta.
Katrín Jakobsdóttir býður sig fram til forseta. Vísir/Vilhelm

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur tilkynnt að hún gefi kost á sér til embættis forseta Íslands.

Katrín segir í yfirlýsingu að hún muni biðjast lausnar úr embætti forsætisráðherra og bjóða sig fram til forseta. Hún muni á næstu vikum ferðast um landið og tala við landsmenn um framtíðina.

Hún segir alls ekki gefið að hún, sem hafi verið í stjórnmálum í tuttugu ár, bjóði sig fram til forseta. Hún hafi fyrir nokkuð löngu síðan ákveðið að hún myndi ekki gefa kost á sér í komandi Alþingiskosningum. Hún telji þó að hún geti áfram gert landi og þjóð gagn og því hafi hún ákveðið að bjóða sig fram til forseta.

„Sú reynsla sem ég hef af stjórnmálum, reynslan af því að leiða saman ólíka hópa og sá skilningur sem ég hef öðlast á þeim tíma, gerir það að verkum að hún geti nýst vel í þessu embætti.“

Katrín tilkynnti framboð sitt í myndbandsfærslu á samfélagsmiðlum.

Forsetinn þurfi að sýna forystu og auðmýkt

Katrín segir að hún hafi undanfarið velt fyrir sér forsetaembættinu. Það sé mikilvægt embætti. Forsetinn þurfi að skilja gangverk stjórnmála og samfélags, hann þurfi að geta sýnt forystu og auðmýkt, hann þurfi að gæta hagsmuna Íslands á alþjóðavettvangi, hann þurfi að geta tekið erfiðar ákvarðanir, óháð stundarvinsældum, hann þurfi að geta talað til þjóðarinnar allrar. „Enda verður ekki af honum tekið að hann er kosinn af þjóðinni.“

Risastórar áskoranir framundan

Katrín segir okkur stödd á flóknum tímum. Stríðsátökum hafi fjölgað í heiminum. Við stöndum frammi fyrir risastórum áskorunum á sviði loftslags og umhverfismála. Tækniþróunin sé á slíkum hraða að annað eins hefur ekki sést og aldrei hafi verið mikilvægara að efla og gæta mennskunni. 

„Á slíkum tímum þurfum við að horfa á undirstöðurnar, menntun og menningu. Þurfum að tryggja íslenska tungu sem er okkar rótfesta, en á sama tíma þurfum við að standa vörð um fjölbreytnina sem einkennir íslenskt samfélag. Í öllum þessum málum hefur forsetinn hlutverki að gegna, að tala skýrt fyrir þeim grunngildum sem við byggjum íslenskt samfélag á, lýðræði, mannréttindum og réttarríkinu. Bæði hér heima og á alþjóðavettvangi.“

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Katrín búin að taka á­kvörðun og upp­lýsa ríkis­stjórn

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins segir Katrínu hafa greint ríkisstjórn frá ákvörðun sinni. Það sagði hann að loknum ríkisstjórnarfundi. Forsætisráðherra muni sjálf tilkynna um ákvörðun sína. 

„Það er ákveðið óvissustig núna“

Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að möguleg ákvörðun Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, um að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands, hafi ekki verið til formlegrar umræðu á ríkisstjórnarfundi í morgun.

Katrín vildi engum spurningum svara

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra yfirgaf ríkistjórnarfund morgunsins án þess að gefa sér tíma til að svara spurningum fjölmiðla varðandi líklegt forsetaframboð sitt. Hún sagðist vera á leið í stjórnarráðið og myndi ræða við fjölmiðla síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×