Innlent

Festist í dekkjar­ólu á Völlunum

Atli Ísleifsson skrifar
Rólan á myndinni tengist fréttinni ekki beint.
Rólan á myndinni tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Vilhelm

Slökkvilið og lögregla á höfuðborgarsvæðinu voru kölluð út eftir að ungur einstaklingur hafði fests í dekkjarólu á leiksvæði í Hafnarfirði í gærkvöldi.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði átti atvikið sér stað á Völlunum í Hafnarfirði og barst tilkynningin um klukkan 21 í gærkvöldi.

Þegar slökkvilið bar að garði voru lögreglumenn þegar búnir að losa viðkomandi og var sá frelsinu feginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×