Innlent

Mennirnir á myndinni hafi ekkert með um­mælin að gera

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp hefur lagt fram kæru til siðanefndar blaðamanna vegna fréttar mbl um kæru á hendur ónefndum palestínskum mótmælanda.
María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp hefur lagt fram kæru til siðanefndar blaðamanna vegna fréttar mbl um kæru á hendur ónefndum palestínskum mótmælanda.

Kona sem kært hefur mbl.is til siðanefndar Blaðamannafélags Íslands vegna fréttar um meinta hatursorðræðu palestínskra mótmælenda segir alla mótmælendur liggja undir grun vegna framsetningar fréttarinnar.

Fréttin sem um ræðir birtist á sjöunda tímanum í gærkvöldi á vef mbl.is. Þar kom fram að kæra hafi verið lögð fram á hendur einum mótmælanda á miðvikudag. Ekki kom fram hver kærandinn er. Mótmælandinn er sakaður um hat­ursorðræðu í Face­book-færslu sem mbl birtir skjáskot af, sem hefur verið nafnhreinsað. Færslan hefur verið vélþýdd yfir á ensku en þar er hvatt til morða á gyðingum, hvar sem þá sé að finna. Aðalmynd fréttarinnar er þá af hópi mótmælenda á Austurvelli.

María Lilja Þrastardóttir er sú sem kærði frétt mbl til siðanefndar Blaðamannafélags Íslands. Hún segist þekkja vel til þeirra Palestínumanna sem hafi mótmælt á Austurvelli að undanförnu.

„Ekkert okkar kannast við þessi ummæli fyrir það fyrsta, og það er hreinlega eins og við liggjum öll undir grun, með þessu orðavali, myndavali og órökstuddum ásökunum sem settar voru fram í greininni,“ segir María Lilja.

Sjá einnig: Kærir mbl til siðanefndar blaðamanna vegna skrifa um flóttamenn

Enginn blaðamaður er skráður fyrir fréttinni. Því sé kæran sett fram á hendur útgefanda og fréttastjóra miðilsins.

„Manneskjurnar sem eru þarna á myndinni hafa ekkert með þetta að gera og í rauninni engin bein tengsl.“

María Lilja birti kæruna til siðanefndarinnar í heild sinni á Facebook í gær, en hún telur fréttina varða við aðra, sjöttu og sjöundu grein siðareglna blaðamanna.

„Sem fjalla um framsetningu og heimildaöflun, að setja alvarlega ásakanir ekki fram svona samhengislaust,“ segir María Lilja. 

Í frétt mbl er einnig vísað til fleiri ummæla sem sagt er að kært hafi verið fyrir, en engin skjáskot af þeim fylgja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×