Erlent

Segja rangar sprengjur hafa leitt til mikils mann­falls

Samúel Karl Ólason skrifar
Stór hluti Gasastrandarinnar er í rúst og fjölmargir halda til í tjöldum.
Stór hluti Gasastrandarinnar er í rúst og fjölmargir halda til í tjöldum. AP/Fatima Shbair

Yfirmaður í ísraelska hernum segir að notkun rangrar tegundar skotfæra í mannskæðum loftárásum á Gasaströndinni á aðfangadag hafi leitt til umfangsmikils mannfalls, sem hægt hefði verið að komast hjá. Umræddar árásir voru gerðar í Maghazi-flóttamannabúðunum en að minnsta kosti 86 eru sagðir hafa fallið í þeim.

Tvær herþotur voru notaðar til að gera árás á stað sem á að hafa hýst Hamas-liða en nærliggjandi byggingar urðu fyrir verulegum skemmdum.

Heilbrigðisráðuneyti Gasastrandarinnar, sem Hamas stýrir, segir að 86 manns hafi fallið í árásunum og er talið líklegt að sú tala muni hækka frekar. Heilbrigðisráðuneytið segir að loftárásirnar hafi hæft þrjú íbúðarhúsnæði seint á aðfangadagskvöld, meðal annars fjölmenna íbúðablokk sem hafi gjöreyðilagst.

Samkvæmt Breska ríkisútvarpinu (BBC) sagði umræddur yfirmaður að sú tegund skotfæra sem hefði verið valin til árásanna hefði ekki verið í samræmi við eðli loftárásanna og þær hefðu valdið umframtjóni sem hægt hefði verið að komast hjá.

Hann sagði að árásirnar væru til rannsóknar.

Í yfirlýsingu til BBC sagði talsmaður ísraelska hersins að herinn harmaði þann skaða sem „ótengdir aðilar“ hefðu orðið fyrir og að lært yrði af þessu atviki.

Omar Tischler, einn talsmanna hersins, sagði í dag að ekki væri rétt að ísraelski herinn varpaði svokölluðum heimskum sprengjum í massavís á Gasaströndina. Farið væri í gegnum ítarlegt ferli fyrir hverja árás.

Haft er eftir honum í frétt Times of Israel að fyrst sé skotmark valið eftir upplýsingum sem fyrir liggja. Því næst sé reynt að koma óbreyttum borgurum á brott og síðan velja réttu skotfærin. Með þessu sé hægt að draga úr mannfalli meðal óbreyttra borgara, þó Hamas-liðar skýli sér bakvið þá.

Þá sagði Tischler að þó sprengjur séu ekki búnar staðsetningar- og stýribúnaði, sé þeim varpað af nákvæmni.

Talið er að vel yfir tuttugu þúsund manns hafi fallið í loftárásum Ísraela á Gasaströndina frá því í október. Stór hluti þeirra konur og börn. Flestir þeirra 2,3 milljóna manna sem búa á Gasaströndinni hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna átakanna og mikil óreiða og neyð ríkir á Gasaströndinni.


Tengdar fréttir

Gantz hótar átökum við Hezbollah

Benny Ganz, ráðherra í ríkisstjórn Ísraels, segir að ísraelski herinn muni ráðast gegn hersveitum Hezbollah samtakanna í Líbanon ef árásir á Ísrael frá landamærunum halda áfram.

Sex sagðir látnir í aðgerðum Ísraelsmanna á Vesturbakkanum

Jake Sullivan, ráðgjafi Joe Biden Bandaríkjaforseta í þjóðaröryggismálum, fundaði með ráðherra í ríkisstjórn Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, í gær til að ræða framtíð Gasa þegar átökum lýkur.

Tvö hundruð Palestínumenn fallið síðasta sólarhring

Tvö hunduð manns féllu í árásum Ísraelsmanna síðasta sólarhring og rúmlega tólf ísraelskir hermenn, að sögn hersins. Átök helgarinnar eru ein þau blóðugustu frá upphafi stríðs. Hækkandi dánartala innan herbúða Ísraelsmanna er sögð munu kynda undir stuðningi við hertar hernaðaraðgerðir.

Nærri því áttatíu úr sömu fjölskyldunni féllu í árás

Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir árásir Ísraela á Gasaströndinni gera starfsmönnum SÞ erfitt að koma neyðarbirgðum til þeirra sem þurfa á þeim að halda. Miklir tálmar hafi verið settir í veg hjálparstarfsmanna og þörf sé á meiri aðstoð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×