Innlent

Vildu ekki greiða at­kvæði um Euro­vision þátt­töku Ís­lands

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Hús Ríkisútvarpsins við Efstaleiti. 
Hús Ríkisútvarpsins við Efstaleiti.  Vísir/Vilhelm

Stjórnarmeðlimur RÚV kveðst hafa lagt fram tillögu að ályktun vegna Eurovision þess efnis að Ísland taki ekki þátt í keppninni taki Ísrael þátt, á fundi stjórnarinnar. Hann segir fundinn hafa hafnað því að taka tillöguna til atkvæða. Varaformaður stjórnar RÚV segir trúnað ríkja á fundum stjórnarinnar.

Mörður Áslaugarson, stjórnarmeðlimur RÚV segir farir sínar ekki sléttar eftir fund hjá stjórninni í færslu á Facebook síðu sinni. 

„Ég er í stjórn RÚV. Ég hef aldrei áður tjáð mig opinberlega um setu mína þar. Í dag get ég ekki orða bundist og er sleginn. Á fundi stjórnar lagði ég fram eftirfarandi tillögu að ályktun vegna Eurovisoin: „Stjórn RÚV ályktar að ekki verði tekið þátt í Erovision 2024 ef Ísrael tekur þátt í keppninni.“Fundurinn hafnaði því að taka þessa tillögu til atkvæða. Aðeins Margrét Tryggvadóttir studdi hana.“

Trúnaður á fundum stjórnarinnar

Mörður vildi ekki tjá sig nánar um málið þegar fréttastofa náði tali af honum. Í samtali við fréttastofu segir Ingvar Smári Birgisson varaformaður stjórnar RÚV trúnað ríkja á fundum stjórnarinnar og því fáist engar upplýsingar um það sem fram fór á fundinum fyrr en fundargerð verður birt.

Reynt hefur verið að ná í fleiri stjórnarmeðlimi RÚV í kvöld án árangurs. Marta Guðrún Jóhannesdóttir, einn stjórnarmeðlima, gat ekki tjáð sig um málið þegar fréttastofa náði tali af henni og vísaði á fundargerð fundarins sem vænta má að verði birt eftir næsta fund stjórnarinnar.

Stjórn RÚV er skipuð af Alþingi. Formaður hennar er Silja Dögg Gunnarsdóttir og varaformaður er Ingvar Smári Birgisson. Auk þeirra eiga Rósa Kristinsdóttir, Marta Guðrún Jóhannesdóttir, Aron Ólafsson, Mörður, Margrét Tryggvadóttir, Þráinn Óskarsson, Diljá Ámundadóttir Zoega og Hrafnhildur Halldórsdóttir sæti í stjórninni. 

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×