Biðla til Ísraela um að gæta að mannfalli Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 3. desember 2023 10:55 Palestínsk fjölskylda syrgir látinn fjölskyldumeðlim á Gasa ströndinni. AP Photo/Fatima Shbair Ísraelski herinn hefur haldið áfram loftárásum sínum á Gasa í dag. Nú beinast loftárásirnar gegn suðurhluta Gasa. Bandarísk stjórnvöld biðla til þeirra ísraelskru um að virða mannréttindi.
Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins kemur fram að ísraelski herinn hafi beint loftárásum sínum að suðurhluta Gasa síðan að vopnahlé við Hamas rann úr gildi á föstudag. Yfir fimmtán þúsund manns hafa látist á Gasa síðan Ísraelsmenn hófu árásir sínar. Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, tjáði sig um aðgerðir Ísraela í nótt. Hún segir að þrátt fyrir að Ísraelsmenn eigi rétt á að verja sig gegn árásum Hamas liða hafi of margir Palestínumenn látist í núverandi aðgerðum. Breska ríkisútvarpið hefur eftir talsmanni Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraela, að ísraelski herinn geri allt sitt til þess að koma í veg fyrir mannfall meðal almennra borgara. Ísraelsher láti vita af loftárásum fyrir fram. Meðal þeirra fimmtán þúsund Palestínumanna sem látist hafa í loftárásum Ísraelsmanna eru um sex þúsund þeirra börn. Áður hafa alþjóðleg mannréttindasamtök auk stofnana lýst yfir miklum áhyggjum af stöðu mála á Gasa ströndinni. Spítalar séu þar yfirfullir, án rafmagns og nægilegs magns af vatni og mat.
Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Palestína Mest lesið Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Ingólfur tapar meiðyrðamáli: „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ Innlent Ákvað fyrir löngu að fara með ræðuna á íslensku Innlent Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Innlent Kveiktu á tónlist til að yfirgnæfa hávaða í mótmælendum Innlent Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent Fleiri fréttir Andrew Tate beint byssu að andliti konu og hótað henni Fæddi barn ókunnugrar konu vegna mistaka Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Sjá meira