Innlent

Gjafir og gjörningar fyrir Grind­víkinga á óvissutímum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Grindvíkingar fengu nokkrar mínútur seinni partinn í gær til að sækja eignir og verðmæti úr húsum sínum.
Grindvíkingar fengu nokkrar mínútur seinni partinn í gær til að sækja eignir og verðmæti úr húsum sínum. Vísir/vilhelm

1200 heimili í Grindavík eru mannlaus og í kringum 3800 Grindvíkingar gista hjá fjölskyldu og vinum, í hjólhýsum, í sumarbústöðum eða fjöldahjálpastöðvum. Fólk og fyrirtæki hafa fjölmörg boðið fram aðstoð sína á þessum óvissutímum.

Að neðan má sjá samantekt á hinum ýmsu gjöfum, afsláttum og viðburðum. Listinn er langt í frá tæmandi og ábendingar má senda á ritstjorn@visir.is.

Líkamsrækt og sund

Sundlaugar Kópavogs, Hafnarfjarðar og Mosfellsbæjar bjóða frítt sund.

Mjölnir býður frítt á æfingar.

Afrek líkamsræktarstöð býður Grindvíkingum að koma frítt.

World Class býður frítt á 18 stöðvar sínar og átta sundlaugar.

Reebok Fitness býður frítt mánaðarkort eða mánuð í Crossfit fyrir Grindvíkinga.

Crossfit Sport í Sporthúsinu býður fríar æfingar.

Stærðarinnar sprunga í miðri Grindavík í námunda við íþróttahús bæjarins.vísir/vilhelm

Bootcamp býður fríar æfingar.

Grandi 101 býður fríar æfingar.

Grindvíkingar velkomnir í Train Station, best að senda email áður á trainstation@trainstation.is.

Hafnarfjarðarbær býður ókeypis á skauta.

Virkni og Vellíðan í Kópavogi bjóða öllum 60 ára og eldri að æfa frítt.

Félag eldri borgara í Garðabæ bjóða eldri borgurum í Jónshús.

Reykjanes

Sporthúsið Reykjanesbæ býður frían aðgang.

Frítt í sund í sundlaug Keflavíkur.

AlphaGym 24/7 býður frían aðgang.

Jarðhræringarnar hafa valdið miklum skemmdum.Vísir/Vilhelm

Orkustöðin Njarðvík býður Grindvíkingum að koma.

3N þríþrautardeild UMFN býður Grindvíkinga velkomna á hlaupaæfingar deildarinnar.

Suðurnesjabær býður Grindvíkingum frítt í sund og líkamsrækt í Garði og Sandgerði.

Norðurland

550 á Króknum tökum vel á móti Grindvíkingum.

Fatasöfnun

Skátafélagið Strókur í Hveragerði verður með opið á milli 19 og 21 á þriðjudagskvöld og 18:15 og 20:15 á miðvikudagskvöld. Fólk er hvatt til að koma með fatapakka og merkja vel eftir stærðum. Grindvíkingar eru velkomnir og sömuleiðis að senda skilaboð utan opnunartíma.

Skátafélagið Heiðabúar í Reykjanesbæ er með opið frá 12-15 mánudaga, þriðjudaga og föstudaga.

Björgunarsveitarfólk á vettvangi í gær.Vísir/Vilhelm

Íbúum Grindavíkur er velkomið að nálgast fatnað, leikföng, rúmföt og annað slíkt, án endurgjalds, í Hertex, nytjaverslunum Hjálpræðishersins Reykjanesbæ & Vínlandsleið. Hægt er að hafa samband símleiðis (421-2859) í gegnum samfélagsmiðla eða vefpóst (jon@herinn.is) fyrir frekari upplýsingar.

Fyrir börnin

Fjölmörg íþróttafélög bjóða börnum frá Grindavík að æfa endurgjaldslaust hjá félaginu.

Skopp Ísland býður grindvískum fjölskyldum að mæta með börnin milli 14 og 16 í þessari viku. Best að bóka í sala@skoppisland.is.

Óðinsauga verður með opið hús á sunnudaginn frá 14-16 í Ögurhvarfi 4a í Kópavogi þar sem grindvískum börnum verða gefnar bækur.

Grindvíkingar fá ókeypis á Aðventusvellið í Reykjanesbæ helgina 17. til 19. nóvember.

Partýbúðin býður diska, servíettur, glös og nokkrar blöðrur fyrir þau grindvísku börn sem eiga afmæli á þessum erfiðu tímum.

Grindvíkingar höfðu hraðar hendur í gær þegar þeir fengu smá glugga til að fara í húsin sín.Vísir/Vilhelm

Æskulýðsstarf KFUM og KFUK í Grindavík flyst á Holtaveg. Þar verður fundur á þriðjudagskvöld klukkan 20-21:30. Leiðtogarnir Guðmundur Tómas og Agnar taka á móti þátttakendum.

Arena Gaming býður Grindvíkingum að gleyma ástandinu í heimi tölvuleikjanna.

Húsnæði

Útilegumaðurinn í Mosfellsbæ býður Grindvíkingum sem eiga ekki í nein hús að venda að dvelja í hjólhýsi.

Slökun

Djúpslökun fer fram þrisvar í viku á vinnustofu Sögu í Flatahrauni í Hafnarfirði. Mánudaga 12:10-12:55, miðvikudaga 16:30-17:15 og Föstudaga 12:10 til 12:55.

Djúpslökun fer fram í Hveragerðiskirkju alla miðvikudaga klukkan 18. Aðgangur er ókeypis.

Vinnutengt

Íshús Hafnarfjarðar við Strandgötuna býður vinnustofurými til afnota.

Egill Árnason hefur eitt til tvö störf í boði eins lengi og þörf er á. Starfið krefst ekki sérþekkingar. ae@egillarnason.is.

Heimilið

Fatahreinsun Kópavogs býður Grindvíkingum ókeypis þvottaþjónustu fyrir heimilisþvottinn.

Vörður fellir niður iðgjöld í desember til allra viðskiptavina í Grindavík.

VÍS hefur boðið fjóra bústaði starfsmannafélagsins til afnota þeim Grindvíkingum sem eigi í engin önnur hús að venda.

Arion býður viðskiptavinum úr Grindavík þriggja mánaða greiðslufrest á íbúðalánum sínum hjá Arion. Um hefðbundna frystingu er að ræða þar sem vextir og verðbætur leggjast á höfuðstól. Enginn kostnaður fylgir frystingunni.

Fyrstu íbúar sem fengu að fara á svæðið voru með hjálma á höfði til að gæta öryggis.Vísir/Vilhelm

Vodafone fellir niður kostnað vegna fjarskipta hjá Grindvíkingum út nóvember og fyrirtækjum þar í viðskiptum við okkur. Sama verður uppi á teningnum í desember ef nauðsyn þykir. Ef fólk er í netlausu húsnæði er velkomið að koma í verslanir Vodafone og fá 5G nettengingar að kostnaðarlausu.

Nova fellir niður kostnað vegna nettenginga til heimila og fyrirtækja í Grindavík út árið. Einnig fá allir viðskiptavinir Nova í Grindavík ótakmarkað net í farsímann í nóvember og desember endurgjaldslaust.

Viðburðir

Lava Centre á Hvolsvelli býður Grindvíkingum frítt á eldfjallasýningu á Hvolsvelli út nóvember.

Grindvíkingum er boðið á tónleika með Freyjukórnum í Borgarneskirkju í kvöld klukkan 20.

Afslættir og tilboð

Lindex býður öllum Grindvíkingum að versla fyrir tíu þúsund krónur og 20 prósent afslátt af öllum vörum. SMS-skilaboð til Grindvíkinga eru í dreifingu sem gilda sem inneign upp á tíu þúsund krónur.

Gleraugnaverslunin Sjón býður Grindvíkingum uppá fría sjónmælingu og veglegan afslátt af vörum.

Miklar skemmdir hafa orðið á fjölmörgum húsum í bænum.

Hárakademían býður upp á fría klippingu, blástur, litun og fleira. Best að hafa samband við Alex Thasapong í 571-2279.

4f býður 30% af æfingafatnaði

Annað

Bullseye býður í pílu og léttar veitingar

Hannesarholt við Grundarstíg minnir á að opið er 11:30-16 nema sunnudaga og mánudaga. Þau þiggja símtal fyrir komu svo hægt sé að skipuleggja kaffi eða hádegismat. 511-1904.

Vantar eitthvað í upptalninguna? Sendu okkur línu á ritstjorn@visir.is og við bætum við fréttina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×