Innlent

Álftir búnar að éta upp átta hektara af korni hjá Björgvini bónda

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Björgvin Þór Harðarson, kornbóndi í Laxárdal, sem hefur orðið fyrir miklu tjóni af völdum álfta í haust á kornökrum sínum í Gunnarsholti.
Björgvin Þór Harðarson, kornbóndi í Laxárdal, sem hefur orðið fyrir miklu tjóni af völdum álfta í haust á kornökrum sínum í Gunnarsholti. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Kornbóndi á Suðurlandi hefur orðið fyrir milljóna tjóni í haust vegna álfta, sem hafa étið upp sex til átta hektara af korni hjá honum. Bóndinn segir fuglana sitja um akrana en ekki má fækka þeim þar sem álftin er friðuð. „Alveg glatað“ segir bóndinn.

Björgvin Þór Harðarson er einn af öflugri kornbændum landsins en auk þess að vera kornbóndi er hann svínabóndi á bænum Laxárdal í Skeiða og Gnúpverjahreppi en hann ræktar allt fóður í svínin sín sjálfur, sem sagt allt alið upp á íslensku fóðri þar sem byggið er megin uppistaðan.

En það er svartur blettur á kornræktinni en það er álftin og gæsin, sem liggur í kornökrunum og étur þá upp. Álftin er sérstaklega skæð hjá Björgvini á ökrunum hans í Gunnarsholti á Rangárvöllum, sem hann leigir af Landgræðslunni.

„Þær sitja bara á kantinum og bíða á meðan maður er að þreskja og horfa á. Og svo þegar maður fer á kvöldi þá fara þær strax að kíkja á kornið, sem á eftir að slá. Ég held að hún sé búin að éta hjá mér og eyðileggja þetta árið svona sex til átta hektara,” segir Björgvin.

Björgvin Þór ræktar allt fóður í svínin sín sjálfur, sem sagt allt alið upp á íslensku fóðri þar sem byggið er megin uppistaðan.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Og Björgvin Þór segir að það tjón, sé upp á einhverjar milljónir króna, sem fæst ekki bætt.

„Maður þarf að búa við þetta, þetta er alveg glatað.”

En hvað finnst Björgvini um að álftin sé friðuð?

„Ég held að það þurfi eitthvað að fara að endurskoða það, það er orðið allt of mikið af þessu. Þetta er bara orðið stórt vandamál ég held að það þurfi að skoða það gaumgæfilega hvort það megi ekki eitthvað grisja þennan stofn,” segir Björgvin Þór.

Álftirnar hafa étið upp á milli sex og átta hektara af korni hjá Björgvini Þór í haust.Magnús Hlynur Hreiðarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×