Viðskipti innlent

Ráðin fram­kvæmda­stjóri Two Birds og Aur­bjargar

Atli Ísleifsson skrifar
Ásdís Arna Gottskálksdóttir.
Ásdís Arna Gottskálksdóttir. Aðsend

Ásdís Arna Gottskálksdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjártæknifyrirtækisins Two Birds ehf. sem er rekstraraðili Aurbjorg.is. Hún kemur til Two Birds frá Abler þar sem hún starfaði sem fjármála - og rekstrarstjóri og bar meðal annars ábyrgð á fjármálum, áætlunum og daglegum rekstri félagsins.

Í tilkynningu segir að áður hafi Ásdís starfað í um tuttugu ár sem forstöðumaður þjónustusviðs Five Degrees, fyrrum Libra, sem sérhæfi sig í þróun á hugbúnaðarlausnum fyrir fjármálamarkaði á Ísland sem og erlendis. 

„Gert er ráð fyrir að Ásdís hefji störf á næstu vikum. 

Ásdís er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og BSc. gráðu í viðskiptafræði og tölvunarfræði frá Háskóla Íslands. 

Aurbjorg.is er fjártæknivefur sem hjálpar neytendum með fjármál heimilisins, m.a. með samanburði á ýmsum þjónustum og með því að veita heildstæða yfirsýn yfir fjárhagstöðu hverju sinni. Markmið Aurbjargar er að auka fjármálalæsi, auka gagnsæi og aðstoða neytendur við að taka upplýstar ákvarðanir tengdar fjármálum sem og að aðstoða við að setja sér markmið þess efnis. Aurbjörg.is gætir hlutleysis í samanburði ólíkra kosta sem neytendum stendur til boða hjá bönkum, tryggingarfélögum, símafyrirtækjum o.fl. 

Hjá Two Birds starfar samhentur hópur sérfræðinga á sviði upplýsingatækni, fjártækni, markaðssetningar, nýsköpunar og fasteignaviðskipta. Félagið býr einnig yfir öflugu gagnasafni um fasteignamarkaðinn og þróar meðal annars nýjar og notendavænar lausnir byggðar á þeim gögnum. Má þar nefna reiknivélar og samanburð á ýmsum þjónustum. Stærsti eigandi Two Birds er InfoCapital ehf. 

InfoCapital er fjárfestingarfélag stofnað árið 2009 af Reyni Grétarssyni, stofnanda Creditinfo Group. Megináhersla félagsins er að fjárfesta í skráðum og óskráðum fyrirtækjum ásamt því að taka þátt í uppbyggingu öflugra fyrirtækja á sviði nýsköpunar. Hjá InfoCapital starfar einvala lið frumkvöðla með reynslu af stofnun og stjórnun fyrirtækja sem byggð hafa verið frá grunni upp í að vera fjölþjóðleg fyrirtæki með hundruð starfsmanna,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×