Viðskipti innlent

Helgi nýr fram­kvæmda­stjóri sviðs fjár­mála og rekstrar hjá HH

Atli Ísleifsson skrifar
Helgi Þorsteinsson.
Helgi Þorsteinsson. HH

Helgi Þorsteinsson hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra sviðs fjármála og rekstrar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og mun hann taka til starfa bráðlega.

Í tilkynningu frá HH segir að Helgi taki við stöðunni af Jónasi Guðmundssyni.

„Helgi kemur til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins frá Símanum, þar sem hann hefur gegnt stöðu leiðtoga fjárstýringar. Hann hefur starfað hjá Símanum í rúmlega tvo áratugi. 

Helgi er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA-próf frá Háskólanum í Reykjavík. Þá hefur hann lokið prófi í verðbréfaviðskiptum,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×