Innlent

Dóttir hins látna fann blóðugan hníf í fyrra­­dag

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Frá vettvangi, Drangarhrauni 12.
Frá vettvangi, Drangarhrauni 12. Vísir/Vilhelm

Nítján ára dóttir Jaroslaw Kaminski, sem var myrtur í Drangarhrauni í sumar, fann hníf sem líklega er sá sem notaður var til að bana föður hennar, í íbúðinni í fyrradag. Verjandi Maciej Jakub Talik, sem er ákærður fyrir manndráp, segir málið skandal og vinnubrögð lögreglu, sem ekki hafi fundið hnífinn, ámælisverð. 

Dóttir Jaroslaw var stödd í íbúðinni að Drangarhrauni ásamt móður sinni, fyrrverandi eiginkonu Jaroslaw í fyrradag, til að taka saman eigur föður síns. 

Mæðgurnar fundu blóðugan hníf í íbúðinni. Að öllum líkindum er um að ræða morðvopnið. Maciej Jakubs Talik var ákærður fyrir að hafa orðið Jaroslaw Kaminski að bana þann 17. júní síðastliðinn. Aðalmeðferð lauk í síðustu viku og málið lagt í dóm. 

Maciej Jakub Talik hefur játað að hafa stungið Jaroslaw Kaminski til bana, en ber við sjálfsvörn. Aðalmeðferð málsins lauk í síðustu viku.Vísir/Vilhelm

Vinnubrögð tæknideildar ámælisverð

Í samtali við fréttastofu segist Elimar Hauksson, lögmaður Maciej hafa verið upplýstur um að hnífurinn hafi fundist í gær. Hann segir „algjört bull“ að þetta skuli vera að gerast.

„Við erum að tala um að þetta er á vettvangi, inni í Drangarhrauni, sem lögreglan er búin að vettvangsrannsaka. Þeir fundu ekki hnífinn. Svo er það almennur borgari, dóttir hins látna, sem finnur hnífinn í íbúðinni þegar hún er að taka saman eigur föður síns. Fjórum mánuðum eftir að málið kemur upp. Þetta er skandall,“ segir Elimar. 

Búið sé að forskoða hnífinn og kanna hvort blóðið sem var á honum hafi verið úr manneskju, og svo hafi verið raunin. Elimar segir málið bætast ofan á þá staðreynd að ekki hafi verið framkvæmd blóðferlarannsókn á vettvangi.

„Í manndrápsmáli, þar sem einungis einn maður er til frásagnar og hefur borið við minnisleysi um margt af því sem gerðist.“

Þetta eru ámælisverð vinnubrögð hjá tæknideild lögreglu sem rannsakar vettvang

Segir aðalmeðferðina í uppnámi

Elimar segist ekki vita til þess að álíka atvik hafi komið upp áður og ekki sé ljóst á þessari stundu hvert framhaldið verði. 

„Aðalmeðferðin er í uppnámi. Það er ljóst að það þarf að leggja fram gögn fyrir dóminn um þennan hníf. Munaskýrslu, og DNA til dæmis. Nú eru sýni farin til Svíþjóðar í DNA greiningu, og slíkt tekur þrjár til fjórar vikur ef allt gengur upp. Í máli sem er búið að dómtaka.“


Tengdar fréttir

Sátu að sumbli og rifust um peninga

Maciej Jakub Talik, sem sætir ákæru fyrir að hafa orðið herbergisfélaga sínum að bana í Hafnarfirði í sumar, segir að hinn látni hafi reynt að kúga út úr honum pening og hann hafi drepið hann í sjálfsvörn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×