Vinkonurnar með nammipoka að horfa á Santa Barbara og Leiðarljós Rakel Sveinsdóttir skrifar 30. september 2023 10:00 Arna Hauksdóttir, prófessor og forstöðumaður við Miðstöð í lýðheilsuvísindum, Háskóla Íslands og stjórnarkona í Vísindagörðum HÍ, segir mikla gósentíð hafa verið í uppsiglingu í íslensku sjónvarpi þegar hún var unglingur. Allt frá því að Dallas var ljósið í myrkrinu. Vísir/Vilhelm Arna Hauksdóttir, prófessor og forstöðumaður við Miðstöð í lýðheilsuvísindum, Háskóla Íslands og stjórnarkona í Vísindagörðum HÍ, rifjar upp þá gósentíð sem hófst þegar Dallas var ljósið í myrkrinu og sápuóperur eins og Santa Barbara og Leiðarljós hófu sýningar í íslensku sjónvarpi.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Klukkan er stillt á 7.40 í þeim tilgangi að tryggja að menntaskólanemi heimilisins komi sér af stað, svo kúri ég gjarnan aðeins áfram. Ég er langt frá því að vera týpan sem sprett upp á morgnana og fer í handahlaupum af stað.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Ég elska þegar ég get tekið því rólega á morgnana, fengið mér kaffi og sest við tölvuna á náttfötunum. Ég er oft á fjarfundum á morgnana, þó ekki á náttfötunum, vegna verkefna erlendis og hef því oft vinnudaginn heima, funda, fer yfir tölvupósta og helstu verkefni áður en ég fer út í daginn.“ Þegar þú varst unglingur: Hvaða sjónvarpssería var í uppáhaldi? Þegar ég var unglingur var að hefjast mikil gósentíð í sjónvarpi og úrvalið að stóraukast, samanborið við fyrri ár þar sem Dallas var ljósið í myrkrinu. Uppáhaldið á þessum tíma var auðvitað Beverly Hills 90210 og Melrose Place, enda lifðu karakterarnir þar miklu draumalífi að mér fannst og svo voru þau auðvitað svo falleg! Ég verð einnig að játa að á menntaskólaárunum lá ég líka í sápudrama, meistarastykkjum eins og Santa Barbara og Leiðarljósi. Við vinkonurnar rukum oft heim eftir skóla með nammi í poka til að ná sýningu dagsins og heimalærdómurinn fékk að bíða.“ Arna stýrir nú undirrannsókn Áfallasögu kvenna sem heitir Lóa og er markmið hennar að þróa einfalt hugrænt inngrip sem getur bætt líðan fólks eftir áföll. Outlook er aðal skipulagstólið en eins líka gamla góða aðferðin að skrifa verkefnalista á blað og strika yfir.Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Starfið mitt er mjög fjölbreytt blanda af kennslu, leiðbeiningu framhaldsnema, rannsóknum og stjórnunarstörfum. Til dæmis er ég önnur aðalrannsakenda rannsóknarinnar Áfallasaga kvenna, ásamt Unni Önnu Valdimarsdóttur, þar sem við erum nú á fullu við að vinna úr þeim gögnum og koma út niðurstöðum, ásamt því að leggja lokahönd á nýjan spurningalista sem verður sendur til þátttakenda á næstunni. Þá stýri ég undirrannsókn Áfallasögu kvenna sem heitir Lóa og er markmið hennar að þróa einfalt hugrænt inngrip sem getur bætt líðan fólks eftir áföll. Sú rannsókn hefur verið í undirbúningi í nokkur ár og er stefnan að hefja hana á næstu dögum og er ótrúlega spennandi verkefni. Einnig má nefna að nýverið tók ég sæti í stjórn Vísindagarða, sem eru í eigu Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar, og staðsettir í Vatnsmýrinni. Ég er mikil háskólamanneskja og hefur þótt frábært að sjá hvernig háskólasvæðið hefur þróast til hins betra á síðustu árum. Vísindagarðar hafa spilað stórt hlutverk í þróun svæðisins, meðal annars með tilkomu Grósku. Það má segja að Vísindagarðar séu samfélag nýsköpunar og rannsókna og er mikil og spennandi uppbygging fram undan þar. Sem dæmi má nefna fyrirhugaða uppbyggingu á Djúptæknikjarna, auk nýrrar byggingar á lóð við hliðina á Grósku, sem ber vinnuheitið Viska.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Eins og fyrir mörg er Outlook mitt helsta haldreipi. Þegar margt er í gangi og verkefnalistinn langur finnst mér einnig stórgott að grípa í blað og penna og skrifa lista upp á gamla móðinn, enda mjög þakklátt að fá að strika yfir unnin verk!“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Það kemst fljótt yfir mig værð á kvöldin, og eftir eitthvað áhorf er ég oftast komin upp í rúm um ellefuleytið.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir Forstjórinn sem endar stundum ein á dansgólfinu B týpan Brynja Baldursdóttir, forstjóri Greiðslumiðlunar Íslands, segir umferðateppuna úr Garðabæ alveg gefa frábærar gæðastundir á morgnana og þegar hún er spurð um tónlist og dans, segir hún það oftast frekar auðvelt að ná sér út á gólfið í sveiflu. 23. september 2023 10:00 „Í landinu er margt sem minnir á Ísland, ekki síst pólitíkin og umræðan í þjóðfélaginu“ Þórir Guðmundsson, upplýsingafulltrúi hjá fjölþjóðasveit Atlantshafsbandalagsins í Eistlandi, segist háma í sig fréttir eins og sykurfíkill sælgæti. Og svo margar séu þær fjölmiðlaáskriftirnar að hann eiginlega vilji ekki telja þær. 16. september 2023 10:00 Byrjar daginn á því að pissa í sig af hlátri og eldar í háum hælum Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir þerapisti og höfundur Lærðu að elska þig eldar helst aldrei öðruvísi en í háhæluðum skóm og finnst lífið svo skemmtilegt að hún tímir því varla að fara snemma að sofa. 9. september 2023 10:00 Forstjórinn byrjar daginn á að leggjast aftur upp í rúm og á gaddadýnu Þórður Guðjónsson, forstjóri Skeljungs, segist vel gaddaður þegar hann fer fram úr og nýtur gæðastundar með eiginkonunni. Þá búinn að liggja á Shakti-gaddadýnu og hlusta á jóga-nidra hugleiðslu. EOS aðferðarfræðin í vinnunni er hans helsta skipulagstól. 2. september 2023 10:00 Er skrambi góð á grillinu og segir humarpítsuna vera besta Berglind Ólafsdóttir fjármálastjóri Hörpu er B týpan og á það því til að fara að búa til pestó, múslí eða sultu á kvöldin og enda þá með að fara of seint að sofa. Berglind segist skrambi góð á grillinu á sumrin og þar er það humarpítsa sem varð óvart til í Stykkishólmi um árið, sem er best. 8. júlí 2023 10:00 Mest lesið Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Viðskipti innlent Horfðu á hallærislegt sjónvarpsefni og úðuðu í sig bragðaref Atvinnulíf Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Salzburg úr sögunni hjá Play Viðskipti innlent Frá RÚV til Coca-Cola Viðskipti innlent Gengu langt í að vinna að lausn þótt bíllinn væri ekki í ábyrgð Neytendur Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Viðskipti innlent Átta sagt upp hjá Arion banka Viðskipti innlent Ellefu milljarða lán til að byggja upp veitukerfi og verjast loftslagsvá Viðskipti innlent Fleiri fréttir Horfðu á hallærislegt sjónvarpsefni og úðuðu í sig bragðaref Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ Gervigreind og tíska: Hafa nú þegar fengið 100 milljónir í styrki „Við eigum margar rómantískar stundir í vinnunni“ Langaði svakalega mikið í sleik við George Clooney Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Nýtt trend: Engir yfirmenn á vinnustaðnum Fótboltastelpan um starfsframann: „Að sækja sér tækifærin sjálfur“ „Fyrir mann sem er skrifblindur og lesblindur er þetta ekkert auðvelt“ „Ég verð auðveldlega meyr en segi engum frá því“ Draumar rætast: „Konur þurfa ekki alltaf að vera á skrilljón“ Draumar rætast: „Lengi skammaðist ég mín ...“ Biskupinn á hlaupum með Bubba Morthens og Sísí með Grýlunum Tvöfalt líf Ara: „Í fyrra túraði ég í sex vikur“ Klara á Kanarí: „Fólk kom með ferðatöskur af saltfiski og seldi“ Eiginkonan kvartar undan fíflagangi á morgnana Að ná til baka tilfinningunni: Það er gaman í vinnunni Á mannamáli: „Ég er bara einhver „nobody,“ við erum ekki með nein gögn“ Góð ráð til að hvetja starfsfólk til dáða fyrir síðustu spretti ársins Að yfirstíga eitthvað rosalega vandræðalegt atvik Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Google leiðin: Fjögur atvinnuviðtöl yfirdrifið nóg Ný tækifæri: Til dæmis skór úr endurunnu sjávarplasti Að lifa af hræðilega þynnku í vinnunni Sjá meira
Forstjórinn sem endar stundum ein á dansgólfinu B týpan Brynja Baldursdóttir, forstjóri Greiðslumiðlunar Íslands, segir umferðateppuna úr Garðabæ alveg gefa frábærar gæðastundir á morgnana og þegar hún er spurð um tónlist og dans, segir hún það oftast frekar auðvelt að ná sér út á gólfið í sveiflu. 23. september 2023 10:00
„Í landinu er margt sem minnir á Ísland, ekki síst pólitíkin og umræðan í þjóðfélaginu“ Þórir Guðmundsson, upplýsingafulltrúi hjá fjölþjóðasveit Atlantshafsbandalagsins í Eistlandi, segist háma í sig fréttir eins og sykurfíkill sælgæti. Og svo margar séu þær fjölmiðlaáskriftirnar að hann eiginlega vilji ekki telja þær. 16. september 2023 10:00
Byrjar daginn á því að pissa í sig af hlátri og eldar í háum hælum Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir þerapisti og höfundur Lærðu að elska þig eldar helst aldrei öðruvísi en í háhæluðum skóm og finnst lífið svo skemmtilegt að hún tímir því varla að fara snemma að sofa. 9. september 2023 10:00
Forstjórinn byrjar daginn á að leggjast aftur upp í rúm og á gaddadýnu Þórður Guðjónsson, forstjóri Skeljungs, segist vel gaddaður þegar hann fer fram úr og nýtur gæðastundar með eiginkonunni. Þá búinn að liggja á Shakti-gaddadýnu og hlusta á jóga-nidra hugleiðslu. EOS aðferðarfræðin í vinnunni er hans helsta skipulagstól. 2. september 2023 10:00
Er skrambi góð á grillinu og segir humarpítsuna vera besta Berglind Ólafsdóttir fjármálastjóri Hörpu er B týpan og á það því til að fara að búa til pestó, múslí eða sultu á kvöldin og enda þá með að fara of seint að sofa. Berglind segist skrambi góð á grillinu á sumrin og þar er það humarpítsa sem varð óvart til í Stykkishólmi um árið, sem er best. 8. júlí 2023 10:00